AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Samfélagsstyrkir ALCOA

Þrjár milljónirSjálfboðaliðastarf starfsmanna Fjarðaáls skilar þremur milljónum króna til félagasamtaka á Austurlandi. Styrkirnir voru afhentir á jólahlaðborði starfsfólks fyrirtækisins í dag. Hér á eftir fer tilkynning frá fyrirtækinu.

Lesa meira

Lögmaður AFLs um dóminn

KárahnjúkarÍ dag féllu í Héraðsdómi Austurlands dómar í 12 málum lettneskra starfsmanna gegn GT verktökum ehf. og lettnesku starfsmannaleigunnar Nordic Construction Line SIA. Lyktir málanna voru þær að GT verktakar voru sýknaðir en Nordic Construction Line, sem er í eigu sömu aðila og GT verktakar, var dæmt til að greiða mönnunum vangreidd laun.

Lesa meira

Ekkert leyndó lengur: Landsbankinn

Landsbankinn hefur opinberað upplýsingar sem hann neitaði AFLi og öðrum viðskiptavinum um 3. nóvember sl. og AFL stefndi bankanum og Landsvaka, peningamarkaðsfyrirtæki bankans, eftir á fimmtudag. sjá frétt mbl.

Lesa meira

Athugasemdi vegna fréttar RÚV

Í tilefni fréttar sjónvarps um tap AFLs Starfsgreinafélags vegna innlausnar á peningasjóðsbréfum félagsins í vörslu Landsvaka, dótturfyrirtækis Landsbankans, nýja og gamla, vill félagið koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira

GT - málið vannst - hvar er ábyrgðin?

Nordic Construction Line, lettneskt „skúffu“ fyrirtæki Gísla Sveinbjörnssonar og Trausta Finnbogasonar, eigenda GT verktaka ehf., hefur verið dæmt til að greiða 12 fyrrverandi starfsmönnum sínum laun á uppsagnarfresti og önnur vangoldin laun. Héraðsdómur Austurlands kvað upp dóm í dag, um ári eftir að málin komu upp. Lögmaður AFLs, Eva Dís Pálmadóttir hdl., stefndi fyrirtækjunum í mars sl. vegna brota á kjarasamningum. Brotin fólu meðal annars í sér að starfsmenn voru látnir kvitta fyrir móttöku hærri launa en þeir í raun fengu og féllst héraðsdómur á málatilbúnað starfsmannanna hvað þetta atriði varðar.

Lesa meira

Egilsstaðir: Gunnar R. Matthíasson í Hlymsdölum

Gunnar R. Matthíasson, sjúkrahúsprestur, mun leiða samverustund í Hlymsdölum, Miðvangi 6, Egilsstöðum, í kvöld kl. 20:00 en sóknarprestar á Fljótsdalshéraði, félagsþjónustan og HSA hafa staðið fyrir samverustundum vegna erfiðs atvinnuástands og efnahagskreppu síðustu mánudaga.

Þetta verður síðasta samverustund með þessu sniði fyrir jól.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi