"Stjórn AFLS Starfsgreinafélags krefst þess að umsamin hækkun persónuafsláttar komi til framkvæmda um áramót. Einnig krefst stjórnin þess að áður umsamin verðtrygging á persónuáfslátt haldi. Hlífa verður þeim sem lægstar hafa ráðstöfunartekjurnar við frekari álögum eins og kostur er." - Stjórn AFLs Starfsgreinafélag samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum á miðvikudag. Ályktunin er samþykkt í kjölfar umræðu um skattahækkanir þar sem m.a. hafa verið uppi hugmyndir um að falla frá hækkun persónuafsláttar gegn lægri álagningaprósentu.
Benedikt Davíðsson látinn
Benedikt Davíðsson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, lést í nótt eftir langvarandi veikindi.
Benedikt var formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur en hóf fyrst störf fyrir verkalýðshreyfinguna 1953 þegar hann tók til starfa á skrifstofu Trésmiðafélags Reykjavíkur. Hann sat í miðstjórn ASÍ og var formaður ASÍ um árabil og gengdi auk þess fjölda trúnaðarstarfa fyfir verkalýðshreyfinguna.
Hann var mikill áhugamaður um uppbyggingu lífeyriskerfis verkalýðshreyfinguna og málefni sjúkrasjóða.
Íbúðir um jól og áramót
Launahækkanir 1. nóvember 2009
Þann 1. nóvember n.k. koma til framkvæmda seinni hluti áður frestaðra launahækkana og munu mánaðarlaun verkafólks og verslunarmanna hækka um 6.750 kr., en mánaðarlaun iðnaðarmanna og skrifstofumanna um 8.750 kr. Reiknitölur ákvæðisvinnutaxta hækka um 1.75% frá sama tíma á aðra ákvæðisvinnu en bónusa í fiskvinnslu og slátrun. Hækkanir í ræstingu í tímamælingu hækka í krónutölum en fylgja ekki ákvæðisvinnutöxtum.Þeir sem eru með laun umfram umsamda launataxta fá 3,5% hækkun frá 1. nóvember, en heimilt er að draga frá þær hækkanir sem áður hafa komið til framkvæmda á árinu.
Ný launatafla tekur gildi hjá starfsmönnum Ríkis og einnig hjá starfsmönnum sveitarfélaga, en hækkun samkvæmt henni er mismikil og fer eftir því hve hátt menn raðast í launaflokk.
Laun þessara hópa hækka næst 1. júní 2010.
Ný launatafla tekur gildi hjá starfsmönnum Ríkis og einnig hjá starfsmönnum sveitarfélaga, en hækkun samkvæmt henni er mismikil og fer eftir því hve hátt menn raðast í launaflokk.
Laun þessara hópa hækka næst 1. júní 2010.
Kjaraskerðingum hafnað: Opið bréf til ríkisstjórna Norðurlandanna
Formenn aðildarsamtaka Industrianställda i Norden, eða samtök starfsfólks í iðnaði á Norðurlöndunum, hafa birt opið bréf til ríkisstjórna landanna. Í bréfinu er m.a. hvatt til að stuðla að aukinni atvinnuþátttöku.
Sjómenn í gjallbing
Fleiri greinar...
- Ársfundur ASÍ - ályktanir. AFL í miðstjórn
- Íbúðir AFLs Starfsgreinafélags um jól og áramót
- Fulltrúar AFLs á ársfundi ASÍ 2009
- Athugasemd um Landsvaka
- Öfundsverðar langtímahorfur: 50 milljarðar innleystir
- Gagnrýni AFLs var kannski óþolandi - en réttmæt!
- Yfir 50% sjóða Landsvaka til skyldra aðila
- AFL undirbýr stefnur á hendur sjóðsstjórum
- Hjólbarðaverkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði ódýrt
- Talsverður verðmunur á smurþjónustu á Austurlandi