Formenn aðildarsamtaka Industrianställda i Norden, eða samtök starfsfólks í iðnaði á Norðurlöndunum, hafa birt opið bréf til ríkisstjórna landanna. Í bréfinu er m.a. hvatt til að stuðla að aukinni atvinnuþátttöku.
Ennþá eru lausar íbúðir í Reykjavík um jól og áramót. Þeim sem áhuga hafa er bent á að setja sig í samband við skrifstofur AFLs sem fyrst. Einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublað á vefnum okkar.
Þann 1. nóvember n.k. koma til framkvæmda seinni hluti áður frestaðra launahækkana og munu mánaðarlaun verkafólks og verslunarmanna hækka um 6.750 kr., en mánaðarlaun iðnaðarmanna og skrifstofumanna um 8.750 kr. Reiknitölur ákvæðisvinnutaxta hækka um 1.75% frá sama tíma á aðra ákvæðisvinnu en bónusa í fiskvinnslu og slátrun. Hækkanir í ræstingu í tímamælingu hækka í krónutölum en fylgja ekki ákvæðisvinnutöxtum.Þeir sem eru með laun umfram umsamda launataxta fá 3,5% hækkun frá 1. nóvember, en heimilt er að draga frá þær hækkanir sem áður hafa komið til framkvæmda á árinu.
Ný launatafla tekur gildi hjá starfsmönnum Ríkis og einnig hjá starfsmönnum sveitarfélaga, en hækkun samkvæmt henni er mismikil og fer eftir því hve hátt menn raðast í launaflokk.
Laun þessara hópa hækka næst 1. júní 2010.
Umsóknarfrestur um íbúðir AFLs fyrir jól og áramót ´09, er liðinn og hefur úthlutun þegar farið fram. Búið er að senda tilkynningar til allra umsækjenda bæði þeirra sem fengu úthlutað sem og þeirra sem ekki fengu, og eru þær að berast til þeirra þessa dagana. Öll tímabilin gengu út nema á Akureyri þar sem íbúðin í Furulundi er laus um áramótin.
Formannafundur Sjómannasambands Íslands var haldinn í Vestmannaeyjum um helgina. Grétar Ólafssson, formaður Sjómannadeildar AFLs, Stephen Róbert Johnson, varaformaður, og Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs, sóttu fundinn fyrir hönd AFLs.
Á ársfundi ASÍ sem lauk á föstudag voru afgreiddar ályktanir um atvinnumál, efnahags-og kjaramál, og hag heimilanna. Að auki var fjallað um málefni lífeyrissjóða og samþykkt að fela miðstjórn að hefja víðtæka og almenna umræðu um málefni lífeyrissjóða aðildarfélaga ASÍ og undirbúa samningsmarkmið í endurskoðun samnings við SA um lífeyrissjóði.