AFL starfsgreinafélag

Upplýsingar er tengjast atvinnulífinu

AFL Starfsgreinafélag mun innheimta full laun fyrir alla sjálfboðaliða í atvinnulífi sem til okkar leita.

Sjálfboðaliðastörf í atvinnulífinu eru alvarleg meinsemd. Og líkt og aðrar plágur breiðist þessi meinsemd hratt út. Vinna sjálfboðaliða í efnahagslegum tilgangi er misnotkun á fólki og vanvirðing við vinnumarkað og vinnandi fólk. Þetta er fóðrað með alls kyns jákvæðum skírskotunum – náms- og kynningarvinna og að gefa ungu fólki tækifæri til að skoða heiminn. En þegar málin eru skoðuð nánar er þetta ekkert annað en félagslegt undirboð – fólk sem ekki þarf að framfleyta sér sjálft gengur í kjarasamningsbundin störf upp á sportið og grefur þannig undan kjörum annarra. Sjálfboðaliðarnir taka fullan þátt en greiða ekki skatta og skyldur, eru ótryggð í trausti þess að velferðarkerfið okkar grípi þau ef þau veikjast eða slasast. Þau og fólkið sem hagnýtir sér vinnu sjálfboðaliðanna eru laumufarþegar á atvinnulífi – fá ókeypis far og láta aðra um að borga brúsann.