AFL starfsgreinafélag

AFL: Símenntunarverðlaun 2008

thumb_logovikan2008Þekkingarnet Austurlands afhenti í hádeginu í dag Símenntunarverðlaun 2008 og hlaut AFL Starfsgreinafélag verðlaunin að þessu sinni en 2007 varð Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra fyrir valinu. Í tilkynningu frá ÞNA segir m.a:

"AFL  starfsgreinafélag hlýtur Símenntunarverðlaun Þekkingarnets Austurlands 2008 fyrir markvissa endurmenntunarstefnu sinna félagsmanna.

Verðlaunin eru veitt í tilefni Viku símenntunar 22. til 28. september 2008.  Verðlaunin eru nú veitt í annað sinn en við val á fyrirtæki/stofnun var miðað við þátttöku starfsmanna í símenntun, starfsmannastefnu og virka hvatningu og stuðning fyrirtækis/stofnunar til starfsmanna sinna"

Framkvæmdastjóri AFLs tók við verðlaununum fyrir hönd félagsins og sagði að stjórn félagsins væri

einhuga um að efla og styðja félagsmenn AFLs til dáða í mennta-og fræðslumálum og félagið hefði varið mikilli orku og talsverðum fjármunum til þessa málefnis. Jafnframt þakkaði hann ÞNA fyrir góða samvinnu við námskeiðahald og annað starf.