AFL starfsgreinafélag

Sveitarfélagasamningur

Velja til að skoða nánar, pdf formÍ gær var skrifað undir kjarasamning milli AFLs og Launanendar sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaganna 10 á Austurlandi. Samningurinn gildir frá 1. desember en eldri samningur rann út 30. nóvember s.l. Samningurinn er í anda þeirra samninga sem launanefndin hefur gert við aðra samningsaðila. Kynningar og atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram í næstu viku.
Helstu atriði samningsins eru:

  • Gildistími samningsins er 1. desember 2008 til 31. ágúst 2009 með fyrirvara, sbr. yfirlýsingu sem fylgir samningnum.
  • Ný launatafla tekur gildi frá.1. desember 2008.
  • Ný launatafla hækkar sem nemur launaviðbótum á lfl. 117-127 skv. ákvörðun Launanefndar frá 28. janúar 2006 sem voru kr. 2000, kr. 3000, kr. 4000, kr. 4500, kr. 6000.
  • Innfærsla á launaviðbótum í taxta hefur áhrif á vaktaálagsgreiðslur og yfirvinnu starfsmanna sem taka laun skv. launaflokkum 117-127.
  • Launataxtar hækka um kr. 20.300.-
  • Starfsmenn í tímamældri ákvæðisvinnu og ræstingu samkvæmt fermetragjaldi fá 16% hækkun.
  • Orlofsuppbót árið 2009 verður kr. 25.200.- 
  • Persónuuppbót í desember hækkar í samræmi við taxtahækkun og verður kr. 72.399.- 2008.
  • Réttur foreldra til fjarveru á launum vegna veikinda barna er aukinn úr 10 í 12 daga.
  • Skýr ákvæði varðandi greiðslu vegna ferðatíma þegar starfsmenn ferðast með og annast nemendur og eða skjólstæðinga á ferðalögum. Greiðsla þessi nemur 12 klst (8 dagvinnutímar og 4 yfirvinnutímar
  • Nýtt framlag til endurhæfingar verður öflug stoð til að takast á við vaxandi örorku og styðja þá, sem lenda í skertri vinnugetu til áframhaldandi starfa á vinnumarkaði.
  • Endurskoða skal á samningstímanum innleiðingu og framkvæmd starfsmatskerfisins SAMSTARF og áframhaldandi þróun þess.
  • Sérákvæði Hulduhlíðar staðfest
  • Samstarfsnefnd félagsins og launanefndar.