AFL starfsgreinafélag

Lágmarkstímakaup með álagi er 905,78

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 (171,15 verslunarmenn) unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), skulu vera sem hér segir fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki:
1. mars 2009 kr. 157.000 á mánuði.

Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til launa þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma.Laun fyrir vinnu umfram 173,33 (171,15) stundir á mánuði og endurgjaldá útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi. 

Í 4. gr. 1.mgr. laga um starfsmenn í hlutastörfum nr. 10/2004 segir:   

Starfsmenn í hlutastörfum skulu ekki njóta hlutfallslega lakari kjara eða sæta lakari meðferð en sambærilegir starfsmenn í fullu starfi af þeirri ástæðu einni að þeir eru ekki í fullu starfi, nema slíkt sé réttlætanlegt á grundvelli hlutlægra ástæðna.“ Þetta þýðir því að ákvæði um lágmarklaun má yfirfæra á hlutastörf hlutfallslega og að þeir sem starfað hafa í fjóra mánuði hjá fyrirtæki og eru 18 ára eru því aldrei með lægra meðaltímakaup í dagvinnu  (dagvinna, bónus, vaktaálag, aukagreiðslur) en:

Verkafólk                   173,33             905,78 kr.

Verslunarmenn           171,15             917,32 kr.