AFL starfsgreinafélag

Kröfugerð SGS tilbúin

Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands, þ.m.t. AFLs og annarra verkalýðsfélaga almenns verkafólks, verður lögð fram á fundi með Samtökum Atvinnulífsins nk. mánudag.

Samninganefnd SGS fundaði sl. mánudag og afgreiddi kröfugerðina samhljóða og var mikill einhugur í fundarmönnum. Ekki er unnt að greina frá efnisatriðum kröfugerðarinnar á þessari stundu þar sem hún hefur ekki verið kynnt viðsemjendum SGS.

Það er þó ljóst að farið verður fram á umtalsverða hækkun lægstu launa og jafnframt tilfærslna innan launatöflu SGS. Eins og áður hefur komið fram setti AFL og þrjú önnur verkalýðsfélög skilyrði við framsal á samningsumboði sínu á þá leið að umboðið væri háð því skilyrði að sérstakar hækkanir yrðu á launum í útflutningsiðnaði, s.s. fiskvinnslu og fleiru - enda njóta þessar greinar mjög hagstæðrar skráningar á gengi um þessar mundir.

Kröfugerð SGS verður birt á síðunni á mánudag.