Byggðaþróun og nýsköpun, ársfundur trúnaðarmanna 2013
![Ársfundur trúnaðarmanna 2013 thumb_arsf2013](/images/stories/Myndir/thumbnails/thumb_arsf2013.jpg)
Meðal framsögumanna voru þeir Sigurður Björnsson, sviðsstjóri hjá Rannís, og Rögnvaldur Ólafsson, frá Háskóla Íslands. Fjölluðu þeir m.a. um stoðkerfi nýsköpunar í atvinnu og kom m.a. fram að Austfirðingar hafa ekki verið duglegir að sækja fjárstuðning vegna nýsköpunarverkefna – fjárstuðning sem stendur til boða úr opinberum sjóðum.
Rögnvaldur fór yfir breytingar sem orðið hafa á stöðu símenntunar og háskólamenntunar á landsbyggðinni og sagði að lyft hefði verið grettistaki í þeim málum – og ekki síst fyrir atbeina aðila vinnumarkaðarins.
Á laugardeginum var starfssemi „Vinnumarkaðsteymis stéttarfélaganna“ kynnt en það samráð ráðgjafa Virk og StarfA sem aðsetur hafa hjá AFLi Starfsgreinafélagi.
Fundinum lauk um kl. 15:00 og þótti vel heppnaður þó hann hefði mátt vera fjölsóttari. .