Verkalýðsfélög eiga að taka afstöðu
![Velja til að skoða könnun í heild thumb_afstada](/images/stories/2013-Frettatengdar-Myndir/thumbnails/thumb_afstada.jpg)
Einungis 24% AFLs félaga og 31% Einingarfélaga eru hlynnt því að forystumenn verkalýðsfélaga gefi kost á sér til forystustarfa í stjórnmálaflokkum.
AFL Starfsgreinafélg og Eining Iðja á Akureyri hafa sl. þrjú ár látið Capacent Gallup gera viðamikla viðhorfs-og kjarakönnun meðal félagsmanna. Þessar kannanir eru byggðar á sambærilegum könnunum sem Efling, Hlíf og Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur hafa látið gera fyrir sig í nokkur ár og því unnt að bera saman niðurstöður að verulegu leyti. Hér má nálgast kjara og viðhorfskönnunina í heildNiðurstöður 2011 og 2012 má sjá hér hér