Formannafundur SGS
Aðgerðahópur á miðausturlandi
Fulltrúar AFLs, VR, Fljótsdalshéraðs, Fjarðabyggðar, Vinnumálastofnunar Austurlandi, Þekkingarnets Austurlands og Starfsendurhæfingar Austurlands, hittust nú seinnipartinn í dag og á fundinum var m.a. ákveðið að þessir aðilar myndu stilla saman strengi sína í þeim erfiðleikum sem búast má við á vinnumarkaði á miðausturlandi.
Engin sátt án skilyrða
Á stjórnarfundi AFLs Starfsgreinafélags sem var að ljúka, var samþykkt að félagið legði eftirfarandi tillögu fyrir ársfund Alþýðusambands Íslands sem hefst á morgun. Tillagan verður lögð fram undir liðnum efnahagsmál:
"Ársfundur Alþýðusambands Íslands samþykkir að fela forseta og miðstjórn ASÍ að undirbúa aðkomu verkalýðshreyfingarinnar að því uppbyggingastarfi Íslensks efnahags-og atvinnulífs sem við blasir með því að skilgreina samningsmarkmið í samvinnu við aðildarsambönd- og félög Alþýðusambandsins.Stapi lækkar vexti um 0,5%
Stjórn Lífeyrissjóðsins Stapa ákvað á fundi sínum í morgun að lækka vexti á lánum til sjóðsfélaga um hálft prósent.
Að sögn Sigurðar Hólm Freyssonar, fulltrúa AFLs í stjórn sjóðsins, var þessi ákvörðun tekin samhljóða af öllum stjórnarmönnum.
Ekki liggur enn fyrir hversu miklu tjóni sjóðurinn hefur orðið fyrir í yfirstandandi efnahagshremmingum.
Ársfundur ASÍ
![Gylfi Arinbjarnarson Gylfi Arinbjarnarson](/images/stories/frettatengdar_myndir_2008/thumbnails/thumb_gylfi_arinbjarnarson.jpg)
Gylfi hafði frá árinu 2001 verið framkvæmdastjóri ASÍ en hann kom fyrst til starfa hjá verkalýðshreyfingunni árið 1989, þá sem hagfræðingur Kjararannsóknarnefndar. Hann var hagfræðingur ASÍ frá 1992-1997 og framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. frá 1997-2001.
More Articles ...
- Verkalýðshreyfingin í naflaskoðun
- Hvert fóru peningarnir?
- Íbúðir um jól og áramót
- Gæta þarf stöðu láglaunafólks
- Stefnumarkandi ákvörðun?
- Séreignasparnaður: Engin ástæða til að hætta
- Upplýsingar frá Alþýðusambandi Íslands
- Skrifstofur lokaðar - starfsmenn stilla saman strengi
- Trúnaðarráð AFLs boðað til fundar
- SGS: Formannafundi frestað