AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Launahækkanir 1. janúar 2022

Launah kj 2022

 Launahækkanir félagsmanna sem starfa á almenna markaðnum (iðnaðarmenn, verslunar-og skrifstofufólk, verkafólk á almennum vinnumarkaði og auk þjónustusamningurinn ( vegna veitinga- gisti og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækjum og hliðstæðir starfsemi)).

25.000 krónur á mánuði á taxta

17.250 krónur á mánuði til þeirra sem eru á launum umfram taxta.

Aðrir kjaratengdir liðir hækka frá sama tíma um 2,5%

Félagsmenn sem starfa hjá stofnunum ríkisins hækka um 17.250 krónur á mánuði

Félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum hækka um 25.000 krónur á mánuði

Laun félagsmanna í Alcoa hækka um 5,8% þann 1.mars 2022.

Lámarkstekjur fyrir fullt starf verður 368.000 krónur á mánuði frá og með 1. janúar 2022

Kjarasamningar sjómanna eru lausir og viðræðum skilað litlum árangri.

Engar hækkanir hafa komið á tryggingu, tímakaup ná aðra kaupliði í þeim samningi frá 1. maí 2019.

Slóð a á kauptaxta

Bæjarstjórn Hornafjarðar gefur lífskjarasamingnum langt nef

Lífskjarasamningurinn

Þar sem sveitarstjórnir lýstu yfir vilja til að halda aftur af verðhækkunum í gjaldskrám til stuðnings lífskjarasamningum þá er ástæða til þess að vera á vaktinni gagnvart hækkunum á gjaldskrám þeirra. Sú yfirlýsing náði til 2020 en hugsunin ætti að gilda áfram þannig að sveitarfélögin stuðli að stöðugu verðlagi.

AFL hefur kannað lauslega hækkanir á gjaldskrám þriggja stærstu sveitarfélaganna á félagssvæðinu

Hjá Múlaþingi-hækka helstu gjaldskrár um 3 -3,5%

Álagningarprósentur fasteignaskatt og lóðaleigu, eru óbreyttar milli ára en meðaltalshækkun á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu var 3,5% þó mismunandi milli byggðakjarna

Stjórn hitaveitunnar hefur boðað álagningarprósenta fráveitugjalda hækki úr 0,32 í 0,35 af fasteignamati eða um 9,38%.

Hjá Fjarðabyggð- er almenn gjaldskráhækkun 2,4%

Álagningarhlutfall fasteignaskatts var lækkað  um 4% og vatnsgjald um 10% en fasteignamat innan sveitarfélagsins hækkaði að meðaltali um 6,2%,  mismunandi þó á milli byggðakjarna.

Orkugjald Hitaveitunnar á Eskifirði var lækkað um 5%

Skólamáltíðir í leik og grunnskólum eru gjaldfrjálsar og hafa verið frá því í haust.

Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði – hækka leikskólagjöld, gjöld fyrir lengda viðveru,  og skólamatur um 9%

Hækkanir á umhverfissviði er gríðarlegar og því borið við að gjaldskráin hafi verið óbreytt frá 2014 en hækkun  fráveita er um 11,67%, tengigjöld fráveitu að 150mm um 12,5% en um 8,57 fyrir tengigjöld fráveitu að 150mm.

Vatnsveita hækkar um 3,33% en tengigjöld að 40 mm hækka um 114,29% en tengigjöld yfir 40 mm um 64%.

Loks hækkar gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar um 10%

Fasteignaprósentan verður óbreytt milli 2021og  2022

Í þessari stuttu samantekt er ljóst að sveitarstjórn Múlaþings og bæjarstjórn Fjarðabyggðar halda aftur af sér í hækkun þjónustugjalda þótt að stjórn HEF telji sig óbundna af lífskjarasamningum.

Bæjarstjórn Hornafjarðar á hinn bóginn, gefur lífskjarasamningum langt nef í ákvörðunum sínum um gjaldskrárhækkanir vegna 2022.

Aðalfundur Sjómannadeildar AFLs - Ath Covid reglur

batar reydarf

Aðalfundur sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn þriðjudaginn 28. desember 2021 kl. 14:00 í húsnæði félagsins að Búðareyri 1 Reyðarfirði

Dagskrá 

  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  2. Kjaramál
  3. Kosning stjórnar
  4. Önnur mál

 

AFL Starfsgreinafélag

Sjómannadeild

Ath. vegna fjöldatakmarkana verðum við að takmarka fjölda þátttakenda á fundinum sjálfum við 20 manns.  Fundurinn verður einnig í fjarfundi.  Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á fundinn með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og taka fram hvort viðkomandi óski eftir að vera á staðnum eða í fjarfundi.  Lokað verður fyrir skráningar kl. 11:00 28. desember. Einungis þeir sem eru skráðir til þátttöku geta verið vissir um að fá sendan hlekk á fundinn eða geta setið fundinn á staðnum.

Um starf og stöðu trúnaðarmanna verkalýðsfélaga

Um starf og stöðu trúnaðarmanna verkalýðsfélaga

Starf trúnaðarmanna hefur verið nokkuð til umræðu síðustu vikur.  AFL Starfsgreinafélag og forysta þess telur nauðsynlegt að árétta þá mikilvægu en jafnframt viðkvæmu stöðu sem trúnaðarmenn geta lent í. Trúnaðarmenn eru fyrst og fremst trúnaðarmenn samstarfsfólks – þ.e. kjörnir af samstarfsfólki til að koma fram fyrir þeirra hönd og gæta hagsmuna þeirra.

Það er því mikilvægt að trúnaðarmaður sem stígur fram með sameiginleg mál samstarfsmanna finni alltaf að hann/hún hafi fullan stuðning frá félaginu og að samstarfsfólk standi með honum/henni.

AFL Starfsgreinafélag hefur alltaf lagt áherslu á að veita trúnaðarmönnum félagsins þann stuðning sem þeir hafa þörf á og vilja þiggja.  Félagið gerir það öllu jafna með því að bjóða aðgang að þeim námskeiðum sem í boði eru og sérstakur starfsmaður AFLs annast samskipti við trúnaðarmenn þannig að þeir geti alltaf leitað eftir stuðningi og handleiðslu þegar á þarf að halda.

Formaður og aðrir í forystu félagsins mæta síðan með trúnaðarmönnum á vinnustaðafundi eða á fundi með stjórnendum vinnustaða þegar þess er óskað.  Þetta er mikilvægt til að trúnaðarmenn skynji það bakland sem félagið veitir í deilum við launagreiðendur.

Það er og ekki síður mikilvægt að hinn almenni félagsmaður sýni trúnaðarmanni sínum stuðning og standi með honum í deilum sem upp kunna að koma – þannig að launagreiðandi skynji þungann af félagasamtökunum en telji sig ekki bara þurfa að eiga við „einn uppivöðslusamann“ starfsmann.

Það eru því miður nokkur dæmi þess að trúnaðarmenn hafi hætt þar sem þeir fengu aldrei stuðning vinnufélaga þegar á hólminn var komið – að þegar verkstjórar gengu á samstarfsfólkið varðandi þau umkvörtunarefni sem þau sjálf höfðu beðið trúnaðarmann um að annast – að þá kannaðist enginn við neitt og sögðu allt í himnalagi.  Þá stendur trúnaðarmaðurinn eftir einn og berskjaldaður og lítur út eins og einhver vandræðamaður sem var að efna til illinda.

Þá hætta trúnaðarmenn og vinnustaðurinn er í verri stöðu á eftir.

Stöndum með trúnaðarmönnunum okkar.

*

Jol2021

Laun í sóttkví - hvaða sóttkví

Sottk Laun

Það er rétt að ítreka ábendingar sem AFL hefur áður flutt - að þegar fyrirtæki eða stofnanir sendir starfsfólk í sóttkví að eigin vali - eiga þessi sömu fyrirtæki og stofnanir að greiða full laun á meðan þeirri sóttkví stendur.

Það eru aðeins ein sóttvarnaryfirvöld á landinu. Ef þau senda einstakling í sóttkví gilda lög nr. 24/2020 um laun í sóttkví. Ef fyrirtæki eða stofnanir hafa einhverjar ýtarlegri kröfur uppi - þ.e. krefjast þess að starfsmenn séu í sóttkví jafnvel þótt að sóttvarnaryfirvöld hafi ekki gefið fyrirmæli um sóttkví - ber fyrirtækjunum skylda til að greiða full laun á meðan.

Nokkur misskilningur hefur verið uppi og jafnvel dæmi um að tekið sé af orlofsdögum vegna þessara "fyrirtækjasóttkvía" en það er með öllu óheimilt.

Þá er félagsmönnum bent á að "sjálfskipuð sóttkví" þ.e. þegar fólk ákveður sjálft að setja sig í sóttkví - veitir ekki rétt til launa, hvorki hjá launagreiðanda viðkomandi né frá Vinnumálastofnun.

Einnig að ferðist fólk erlendis og fyrir liggur að viðkomandi muni lenda í sóttkví við heimkomu - á sá hinn sami ekki endilega rétt á launum í sóttkví.

Á síðu Vinnumálastofnunar er að finna ýtarlegar skýringar og svör við mörgum spurningum sem fólk kann að hafa.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi