AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Almennur félagsfundur í verslunarmannadeild.

Boðað er félagsfundar í verslunarmannadeild AFLs þriðjudaginn 28. janúar 2014 kl 18:00 að Víkurbraut 4 Hornafirði

Dagskrá:
1. Kjarasamningarnir
2. Næstu skref
3. Breyting á reglum starfsmenntasjóðsins
4. Önnur mál.

Ferðir á fundinn eru skipulagðar á skrifstofum félagsins.

AFL samþykkir og fellir nýgerða kjarasamninga

Verkamenn og iðnaðarmenn samþykkja - verslunarmenn fella

51,56% greiddra atkvæða verkamannadeildar AFLs staðfestu nýgerðan kjarasamning félagsins við Samtök atvinnulífsins en 47,92% greiddu atkvæði gegn staðfestingu samningsins. Auðir og ógildir voru 0,52%.  Kjörsókn í verkamannadeild var 39,57%. 

Iðnaðarmannadeild AFLs Starfsgreinafélags staðfesti nýgerðan kjarasamning Samiðnar við SA með 54,29% atkvæða á meðan 45,71 sögðu nei. Auðir og ógildir voru 0%.  Kjörsókn var 42,68%.

Verslunarmenn felldu nýgerðan kjarasamning Landssambands íslenskra verslunarmanna með 63,64% greiddra atkvæða en 34,85% sögðu já. Auðir og ógildir voru 1,52%.  Kjörsókn var 40,24%.

Continue Reading

Fjarðabyggð fellur frá áður boðuðum hækkunum á gjaldskrá.

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið að fella úr gildi hækkun á gjaldskrám leikskóla, skóladagheimila og tónlistarskóla sem taka áttu gildi um áramótin.
Í greinargerð bæjarráðs segir að sveitarfélagið Fjarðabyggð vilji leggja sitt af mörkum til þess að verðlag haldist stöðugt í landinu og afturkalli því hækkanir á umræddum gjaldskrám. 

Continue Reading

Miðstjórn ASÍ - Hækkið ekki!

Ein helsta forsenda þeirra kjarasamninga sem gerðir voru 21. desember er að verðbólga verði lág þannig  að kaupmáttur í landinu aukist. Til þess að þetta takist er mikilvægt að opinberir aðilar og verslunar- og þjónustufyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum á næstu misserum. Sveitarfélög vítt og breitt um landið hafa brugðist vel við kallinu. Nú berast hins vegar váleg tíðindi af fyrirtækjum og opinberum aðilum sem tilkynnt hafa verðhækkanir og eru þar með að vinna gegn markmiðum þess kjarasamnings sem undirritaður var fyrir jól.

Continue Reading

Atkvæðagreiðslu að ljúka

Atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga lýkur á um hádegi á þriðjudag.  Einungis verða talin atkvæði sem komist hafa til kjörstjórnar áður en talning hefst.  Á mánudag verður hægt að koma atkvæðum til skrifstofa félagsins eða til trúnaðarmanna en hætt verður að taka við atkvæðum á skrifstofum félagsins á mánudagskvöld.

Continue Reading

Stefnir í góða kjörsókn

100% þátttaka hjá Toppfisk á Bakkafirði

 Atkvæðaseðlar í kosningu um nýgerða kjarasamninga eru byrjaðir að berast í hús. Víða á félagssvæðinu hafa félagsmenn skilað atkvæðaseðlum á skrifstofur félagsins eða til trúnaðarmanna og í dag kom trúnaðarmaður AFLs Starfsgreinafélags hjá Toppfiski á Bakkafirði með atkvæðaseðla félagsmanna hjá Toppfiski.  Svo virðist sem 100% þátttaka hafi verið meðal félagsmanna starfandi hjá fyrirtækinu.

Continue Reading

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi