Í kjölfar þess að slitnaði upp úr viðræðum um kjarasamning fiskimjölsverksmiðja hefur SA (Samtök atvinnulífsins) tilkynnt að ekki verði unnt að ganga frá kjarasamningi við Starfsgreinasamband Íslands með samning fiskimjölsverksmiðja opinn.
Fyrirtækjum ber að draga stéttarfélagsgjald af launum starfsmanna og skila til þess stéttarfélags sem samningsaðild á um viðkomandi starf og félagssvæði. Þetta má lesa úr dómi er féll í héraðsdómi Reykjavíkru 29. janúar sl.
Starfsgreinasamband Íslands birti á heimasíðu sinni í gærkvöld athugasemdir vegna frétta í fjölmiðlum í gær um stöðu samningamála. Þar kemur m.a. fram að viðræður um launaliði eru skammt komnar. Í kjölfar frétta ríkisútvarpsins hefur fjöldi félagsmanna AFLs sett sig í samband við forystu félagsins og leitað
Miðvikudaginn 23. Janúar s.l. stóðu AFL Starfsgreinafélag og Menntaskólinn á Egilsstöðum fyrir kynningu á iðnnámi í húsnæði skólans. Þeir sem kynntu hinar ýmsu iðngreinar voru kennarar og nemendur frá Verkmenntaskólanum í Neskaupstað og Borgarholtsskóla auk fulltrúa frá Rafiðnaðarsambandinu og Matvís. Um 120 nemendur úr ME og grunnskólum á Austurlandi sóttu kynninguna sem var vel tekið og vakti aðsóknin ánægju þeirra sem að henni stóðu.
Fyrirtæki á Austurlandi sem nýverið hóf að leigja starfsmenn sína út til annarra fyrirtækja án þess þó að vera skráð sem starfsmannaleiga heldur áfram að hirða húsaleigu af mönnunum - þó þeir búi á kostnað annars fyrirtækis.
Þrátt fyrir að samninganefnd SGS hafi verið boðuð með "náttföt og tannbursta" á fund á morgun virðist sem samningar séu enn ekki í augsýn. Fundi samninganefndarinnar var frestað í dag og færður til fimmtudags.