Alþýðusambands Íslands (ASÍ) 12. mars 2016 framkvæmdu Lúðrasveit verkalýðsins, kvennakórarnir Hrynjandi og Katla auk meðlima í Karlakór Reykjavíkur magnaðan gjörning (Flash mob) og göngum Hörpunnar í Reykjavík. Alls tóku 160 manns þátt. Lagið sem þau fluttu var Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness. sjá hér
Í pistli í Austurglugganum í þessari viku er fjallað um kynferðislegt áreiti er ungar stúlkur þurfa að þola. Í pistlinum er vísað til fiskvinnslu sem ekki er nafngreind. Skv. pistlahöfundi, Þórunni Ólafsdóttir, virðist ástandið lítið hafa batnað á fimmtán árum - eða frá því hún sjálf starfaði við fiskvinnslu og þar til sl. sumar er unglingsstúlka sem hún vitnar til, starfaði í sama húsi. Kynferðislegt áreiti er m.a. athugasemdir um vaxtarlag, um einkalíf og hvers kyns niðurlægjandi athugasemdir og atferli.
AFL Starfsgreinafélag fordæmir verkfallsbrot yfirmanna Ísal í Straumsvík sem gengu í morgun í störf hafnarverkamanna í löglega boðuðu verkfalli þeirra. AFL bendir á að nú stendur yfir allsherjaratkvæðagreiðsla um sátt á vinnumarkaði til næstu 2ja ára og framkoma yfirmanna Ísal í yfirstandandi kjaradeilu setur samningaviðræður um framtíðarskipan vinnumarkaðar í uppnám. AFL skorar á stjórn Samtaka Atvinnulífsins að fordæma framkomu Ísal og yfirmanna fyrirtækisins.
Framtíðarsátt á vinnumarkaði getur ekki orðið þeim hætti að verkalýðsfélög skuldbinda félagsmenn sína með kjarasamningum á meðan aðildarfyrirtæki Samtaka Atvinnulífsins taka sér sjálfdæmi um það hvort þau virði þá samninga.
Kjaradeilan er orðin langvinn og því þarf ekki að undra þótt gripið sé til aðgerða til að þrýsta á um kjarabætur. Framkoma Rio Tinto og forsvarsmanna þess í samningaviðræðum við stéttarfélögin er fyrirtækinu til háborinnar skammar og steininn tekur úr við aðgerðum þess í morgun. Við getum ekki unað því að alþjóðleg stórfyrirtæki hámarki hagnað sinn á kostnað íslensks launafólks þvert á kjarasamninga. Útvistun verkefna er eitt helsta verkfæri stórfyrirtækja til félagslegra undirboða og gegn því þarf að berjast af fullri hörku.
AFL Starfsgreinafélag lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu starfsmanna í Straumsvík og rétti þeirra fyrir því að gerðir verði við þá kjarasamningar eins og íslensk lög gera ráð fyrir. Félagsdómur varðandi málið
Eftir langt og strangt vinnuferli staðfesti Menntamálastofnun nýverið nýja og breytta námsskrá vegna grunnnámskeiða fiskvinnslufólks, en námskráin var þróuð af Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Nýja námsskráin hefur í för með sér talsverðar breytingar. Meðal þeirra má nefna að bóklega kennslan verður samtals 48 klukkustundir (var áður 40 klst á grunnnámskeiðum og 8 klst. á viðbótarnámskeiðum) og kröfu um að viðkomandi hafi staðfestingu á því að hann hafi komið að ýmsum verkþáttum í fyrirtækinu og haldi verkdagbók sem verður staðfest af viðkomandi verkstjórnanda. Þá verður sú breyting á að mögulegt verður að meta einingar námskeiðsins (13 talsins) til allt að sjö eininga í framhaldsskóla, í stað fimm eininga á núverandi námskeiðum.
Framvegis falla grunnnámskeið fiskvinnslufólks alfarið undir vottaðar námsleiðir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) sem síðan gerir samninga við viðurkennda fræðsluaðila/símenntunarmiðstöðvar um kennslu o.fl.
Sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ um kjarasamning milli aðildarsamtaka ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 lauk kl. 12 á hádegi í dag.
Já sögðu 9.274 eða 91,28%. Nei sögðu 832 eða 7,81%. Auðu skiluðu 97 eða 0,91%. Kjarasamningurinn var því samþykktur.
Á kjörskrá voru 75.635. atkvæði greiddu 10.653 eða 14,08%.