AFL starfsgreinafélag

Rykið sest - Update - Kurz opadł

skrifstofa1

The Situation is...

The last few days have been very busy at AFL´s offices and hundreds of members, mostly of foreign origin, have been in touch. We have tried to advise and review new contracts with partial jobs and partial benefits. It seems that most employers finished the job at hand before the beginning of April, but we still have several cases on our desks where there are some problems that need to be fixed or explained.

AFL will assist members in the coming days to review payslips and partial benefits. Many of our members are today stuck in Iceland with little or no jobs and limited possibilities of returning to their homes.  It will be the next challenge to help people when the situation clears.

Our offices are open, but we follow the guidelines set by the Chief Epidemiologist and limit the number of people in our offices.  Also, we encourage our guests to wash and sanitize their hands and respect “social distance” of two meters.

The future is uncertain, to say the least.  No one knows when our neighboring countries will lift travel restrictions and when the “market” will come to life again.  AFL will try to be here for our members during this trying time.

Many of the basic industries of AFL´s members, i.e. fisheries, fish factories, fish farming and the aluminum industry and supporting sectors are still in full function.  This means, that for many of us – life just goes on but with the “Covid-19” effect.  For others the near future is uncertain.

Our non-Icelandic speaking members may have noticed some activity on our website and our FB page yesterday – but only in Icelandic.  The short version of that is that the Federation of Employers asked us (The Federation of Labor Unions – ASÍ ) to either postpone an increase in regular pay that is scheduled from April (payable next month) or temporarily cut pension payments (permanently cutting pension rights).  There was some disagreement in our leadership but the majority of ASÍ´s central committee rejected both ideas.  Two members of the central committee resigned in protest.   AFL Starfsgreinafélag´s board supported the view of the majority of the central committee.  That is what our stories yesterday covered.

Kurz opadł

W ostatnich dniach wiele działo się w naszych biurach AFLu. Już nie dziesiątki ale setki naszych członków - głównie obcego pochodzenia –szukało porad i pomocy w zakresie zmian w zatrudnieniu. Wygląda na to, że pracodawcom udało się jeszcze przed końcem miesiąca, rozwiązać większość problemów związanych ze zmniejszoną stopą zatrudnienia korzystając z rządowego programu pomocowego.Obecnie AFL zajmuje się tylko kilkoma przypadkami dotyczącymi tego rodzaju spraw.

Będziemy służyć pomocą w sprawdzaniu odcinków wypłat oraz pilotowaniu realizacji wprowadzonych zmian dot.zatrudnienia. Wielu członków nie tylko naszych, ale i innych związków zawodowych, pozostało w kraju z niewielkim lub calkowitym brakiem zatrudnienia, bez możliwości na powrót do domu.

Na tego rodzaju problemach będziemy chcieli sie skupić w najblższych tygodniach.

Biura AFLu są nadal otwarte, ale zgodnie z instrukcjami Głównego Epidemiologa ograniczyliśmy liczbę przyjmowanych osób w tym samym czasie, zachowując zalecane środki ostrożności dot. dezynfekcji rąk oraz zasadę 2 metrów.

Przyszłość jest niepewna, nikt nie wie, kiedy ograniczenia w podróżowaniu zostaną zniesione w innych krajach i kiedy gospodarka ogólnoświatowa wróci do normy.AFL będzie starał się wspierać swoich członków w tych trudnych czasach.

Na szczęście wiele gałęzi gospodarki wschodniej Islandii nadal w pełni funkcjonuje, np. rybołówstwo i przetwórstwo, akwakultura, przemysł aluminiowy oraz branże powiązane. Również usługi publiczne. Także tam, gdzie inni stanęli w sytuacji niepewności jutra, większość z nas nadal kontynuuje swoją pracę.

Wczoraj na naszej stronie internetowej oraz stronie FB pojawiły się informacje jedynie w języku islandzkim.Dotyczyły one żądania Konfederacji Pracodawców SA umorzenia podwyżek płac oraz tymczasowego obniżenia wpłat składek  emerytalnych. W tej sprawie zaistniał spór w zarządzie Krajowej Federacji Związków Zawodowych ASI.Jednak większość przywódców odrzuciła to twierdzenie.               AFL Starfsgreinafélag z zadowoleniem przyjął końcową decyzję Krajowej Federacji.

Taka była treść wczorajszych wiadomości.

Rykið að setjast

Síðustu dagar hafa verið mjög annasamir á skrifstofum AFLs og hundruð félagsmanna – aðallega af erlendum uppruna – hafa leitað til okkar og fengið ráðgjöf og aðstoð vegna breytinga á ráðningakjörum.  Svo virðist að launagreiðendum hafi tekist að ljúka flestum málum er varða skert starfshlutfall á móti hlutabótum fyrir mánaðarmót og eru nú aðeins fá mál til meðferðar hjá félaginu sem snúa að þessum áföllum sem dunið hafa yfir.

Félagið mun aðstoða félagsmenn við að fara yfir launaseðla og það hvernig framkvæmd breytinganna gengur.  Fjölmargir félagsmenn okkar sem og annarra verkalýðsfélaga eru nú fastir hér á landi með litla sem enga atvinnu og litla möguleika á að komast til síns heima og verður það væntanlega viðfangsefni næstu vikna að leysa úr málefnum þeirra.

Skrifstofur félagsins eru  opnar en við fylgjum leiðbeiningum sóttvarnarlæknis og takmörkum fjölda sem í senn geta heimsótt okkur og leggjum áherslu á handþvott og að fólk virði 2ja metra regluna.

Framtíðin er óviss og enginn veit hvenær ferðatakmörkunum verður aflétt í nágrannaríkjum okkar og hvenær atvinnulífið tekur við sér að nýju. AFL mun reyna að standa við bakið á félagsmönnum sínum á þessum erfiðleikatímum.

Sem betur fer eru margar af grunnstoðum atvinnulífsins á Austurlandi í fullum rekstri, s.s. fiskveiðar og vinnsla, fiskeldi og áliðnaður og skyldar greinar auk opinberrar þjónustu.  Þannig að fyrir mörg okkar er framhaldið bara vinna eins og venjulega en fyrir aðra er mikil óvissa ríkjandi.

Erlendir félagsmenn sáu í gær fréttir á heimasíðu okkar og FB síðu sem aðeins voru á íslensku. Samtök Atvinnulífsins fóru fram á að við afsöluðum okkur væntanlegri kauphækkun og/ eða skertum tímabundið lífeyrisrétt. Það var ágreiningur í forystu Alþýðusambandsins um málið en meirihluti forystunnar hafnaði þessari kröfu.  AFL Starfsgreinafélag fagnaði þessari niðurstöðu Alþýðusambandsins. Um þetta snerust fréttir okkar í gær.

Ekkert umboð til breytinga á kjarasamningi:

asisk

Mikils misskilnings virðist gæta í fréttaflutningi um umboð forystumanna Alþýðusambandsins er varðar kaup og kjör félagsmanna aðildarfélaganna.  Við undirritun kjarasamninga verða þau umboð sem verkalýðsfélög veita landssamböndum óvirk.  Þegar samningur hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu er hann kominn á og ekki hægt að breyta honum nema með aðkomu hlutaðeigandi stéttarfélags og atkvæðagreiðslu félagsmanna.

Annað gildir um lífeyrishluta kjarasamninga aðildarfélaga Alþýðusambandins.  Þar hefur miðstjórn ASÍ samningsumboð fyrir öll félög – en hefð er fyrir því að ef samið er um breytingu á iðgjöldum til lífeyrissjóða – fer sú breyting í sameiginlega allsherjaratkvæðagreiðslu allra félagsmanna aðildarfélaganna.

Vangaveltur um hugsanlega eftirgjöf launahækkana eru því harla óraunhæfar því enginn í miðstjórn ASÍ hefur neitt umboð aðildarfélaga til slíkra viðræðna.  Ef miðstjórn ASÍ hefði samið um lækkun mótframlaga til lífeyrissjóða – hefði þurft að vísa þeim samningi í allsherjaratkvæðagreiðslu þar sem sú samþykkt hefði efalítið verið felld.

AFL Starfsgreinafélag fagnar niðurstöðu meirihluta miðstjórnar og ítrekar að ekkert landssamband né Alþýðusambandið sjálft hefur umboð félagsins til að ræða breytingar á gildandi kjarasamningum. Launafólk um land allt er að taka á sig lífskjaraskerðingu en á sama tíma eru verið að velta launakostnaði 30.000 launþega að mestu leyti yfir á ríkissjóð. Ennfremur er verið að bjóða fyrirtækjum brúarlán, frestun á greiðslum opinberra gjalda og önnur úrræði til aðstoðar á þessum viðsjárverðu tímum.

Launafólk innan ASÍ hefur barist lengi fyrir því að fá lífeyrisréttindi á pari við það sem opinberir starfsmenn njóta og það er sárara en tárum taki að nýjum (fyrrverandi) varaforseta Alþýðusambandsins skuli detta í hug að bjóða þessi lífskjör alþýðufólks föl til að aðstoða launagreiðendur sem nú þegar eru þiggjendur stærstu björgunaraðgerða ríkissjóðs í sögu lýðveldisins.

Launafólk innan verkalýðsfélaga Alþýðusambandsins kýs sér forystu til að verja hagsmuni sína.   Það er fordæmalaust að forystufólk í íslenskri verkalýðshreyfingu hafi sagt af sér trúnaðarstörfum vegna þess að félagar þess hafi ekki vilja gangast undir kjaraskerðingarkröfur vinnuveitenda.

Samtök Atvinnulífsins hafa vísað til fordæmis frá ársbyrjun 2009 en það er villandi samanburður.  Þá voru samningar lausir og forsendunefndir beggja samningsaðila höfðu þá umboð til að slíta eða framlengja samninga.  Innan Alþýðusambandsins fór á þeim tíma fram víðtækt samráð við formenn félaga og þeir við sitt bakland – áður en það skref var stigið.  En það var stigið í umboði kjarasamnings og eftir atkvæðagreiðslu á formannafundi Alþýðusambandsins.  Það umboð er ekki til staðar nú.

 

Ályktun stjórnar AFLs Starfsgreinafélags 1. apríl 2020

Hversdagshetjur – Everyday heroes  -  Bohaterowie codzienności

Verslun

Mynd úr myndasafni AFLs tekin á Höfn

 Hversdagshetjur

Þrátt fyrir yfirstandandi farsótt heldur lífið áfram. Strætisvagnar keyra, sjúkrahúsin starfa og frystihús og álver skapa verðmæti. Sjómenn veiða fisk, verslunarmenn tryggja framboð á vörum og umönnunarstörfin halda áfram og svo framvegis.

Mikilvægi fólks verður seint metið í launaumslögum.  Nú starfa þeir hópa sem samfélagið má síst við að missa. Það er ekki hæst launaða fólkið. Við getum vonað að samfélagið muni þetta í næstu kjarasamningum – en það borgar sig ekki að treysta á það.

Við sendum félagsmönnum okkar sem í dag vinna mikilvæg og þakklát störf -störf sem ekki alltaf eru hátt metin af samfélaginu – okkar bestu kveðjur og þakklæti fyrir framlag ykkar. Farið vel með ykkur og gætið að ýtrasta hreinlæti.

 

Everyday heroes

Despite the ongoing pandemic  life goes on. Buses are on schedule; the hospitals are running. Fish factories and aluminum smelters create wealth.  Fishermen fish, shop workers safeguard our groceries and so on.

The importance of people doesn´t reflect in our paychecks.  The groups at work now are the people we need at their stations now.  It´s not the top of the pay scale.  We can hope that this will be remembered when we negotiate our next General contract – but let´s not bank on it.

We send our members who are today working hard to do these important tasks that need to be done, our greetings and thanks for your important contribution. Take care of yourself and stay safe.

 

Bohaterowie codzienności

Pomimo obecnej epidemii życie toczy się dalej. Autobusy jeżdżą, działają szpitale, przetwórnie rybne i huty przerabiają. Marynarze łowią ryby, kupcy zapewniają dostawy towarów, a sprzedawcy obsługują.

Znaczenie tych wykonywanych prac nie ma odzwierciedlenia w tabelach płac.

Dopiero w czasie kryzysu widać, jak ważne są te prace i jaka jest ich społeczna istotność.

To nie są najlepiej opłacani ludzie. Możemy mieć nadzieję że zostanie to zapamiętane podczas negocjacji  kolejnych umów zbiorowych.

Wszystkim naszym członkom, którzy pozostają na swoich stanowiskach pracy jesteśmy bardzo wdzięczni za ich pracę i wkład.

Dziękujemy Wam i pozdrawiamy.

Dbajcie o siebie i zachowujcie środki ostrożności

Kosning um samning milli SGS og Ríkissjóðs

Niðurstöður kosninga um samning milli SGS og Ríkissjóðs, Talning fór fram 27.03.2020 kl: 10:00. Á Kjörskrá eru 947, fjöldi þeirra sem kaus var 185 eða tæp 20%, já sögðu 164 eða 88,65%, nei sögðu 17 eða 9,19% og 4 tóku ekki afstöðu eða 2,16%.

kosningSGS Rikid

Kjaras sgs rikid heildar

Landsmennt veitir fulla fjármögnun námskeiða

LandsFjarn

Landsmennt fræðslusjóður Samtaka atvinnnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni býður einstaklingum og fyrirtækum að sækja námskeið þeim að kostnaðarlausu.

Í ljósi aðstæðna í íslensku samfélagi hefur stjórn Landsmenntar fræðslusjóðs ákveðið bjóða einstaklingum og fyrirtækjum uppá þann valkost að sækja námskeið á netinu eða í fjarkennslu þeim að kostnaðarlausu.

Einnig mun sjóðurinn rýmka úthlutunarreglur sjóðsins sem taka til námskeiða sem ekki eru rafræn eða í fjarkennslu.  Stofnað verður til átaks í stafrænni/rafrænni fræðslu innan atvinnulífsins í samstarfi við fræðsluaðila og fyrirtæki.

Átakið  gildir frá  15.mars til og með 31.ágúst 2020 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru innan þessa sama tímaramma. Þessi tímarammi verður endurskoðaður ef tilefni verður til.

Nánari útfærsla á átaksverkefninu:  Gerðir verða samningar við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. Þessir samningar gilda einnig tímabundið og gagnvart því námi/námskeiðum sem fræðsluaðilar bjóða upp á innan þessa tímaramma það er frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020

Um leið og Landsmennt hvetur stjórnendur fyrirtækja til þess að sinna sí-og endurmenntun starfsmanna sinna, vill stjórnin koma því á framfæri að tekið verði á móti öllum góðum hugmyndum að fræðslu sem kynnu að nýtast og falla vel að úthlutunarreglum sjóðsins.

Breytingar á úthlutunarreglum eru eftirfarandi:

  • Endurgreiðslur til fyrirtækja vegna kostnaðar við námskeiðahald, miðað við núverandi reglur, verði hækkaðar úr allt að 75% í allt að 90% af styrkhæfum heildarkostnaði. Gildistími verði frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020.
  • Hámarksupphæð einstaklingsstyrkja verður áfram kr. 130.000 á ári miðað við núverandi reglur. Hlutfalli endurgreiðslu verði hins vegar breytt og verði 90% í stað 75% af kostnaði við námið. Gildistími verði frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020.
  • Tómstundstyrkir sem nú eru 75% en að hámarki kr. 30.000 á ári verði í sama hámarki og hefðbundnir styrkir, það er kr. 130.000 á ári. Hlutfall endurgreiðslunnar verði sömuleiðis 90% af viðurkenndum kostnaði við námið. Gildistími verði frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Njálsdóttir, framkvæmdastjóri Landsmenntar í síma 863 6480 eða á tölvupósti, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Open - Otwarte - Opið

skrifstofur2020

AFLs offices are and will be open!

AFL´s offices are open and we are here for AFL´s members.  We have asked you to use email or phone for your business – but we are here at our desks.  It has always been AFLs policy that as long as our members are working  - we are working.  We have never let storms or blocked mountain routes affect our work and we will not let Covid 19 do so.  While our members are washing floors in hospitals, working in fish factories, working in the supermarkets and basically just doing their jobs – we are not going to lock our doors.

Let’s respect social distancing – wash our hands and sanitize and show each other respect and consideration.

 

Biura AFLu są i będą otwarte.

Biura AFLu są czynne i pracownicy pozostają na miejscu.
Dla zachowania niezbędnych środków ostrożności, prosimy interesantów o załatwienie spraw drogą elektroniczną lub telefoniczną jeśli jest taka możliwość.
Jednym z naszych głównych założeń jest, że w czasie gdy nasi członkowie pracują - my również pozostajemy na swoich stanowiskach. Nigdy nie uzależnialiśmy działania naszych placówek od czynników pogodowych czy braku dojazdów. Podobnie w  przypadku COVID-19.
Podczas gdy nasi członkowie wykonują swoją pracę czy to przy sprzątaniu szpitali, w przetwórniach rybnych, dostarczaniu towarów  czy obsłudze w sklepach - nasze biura pozostaną otwarte.

Stosujmy zasadę odległości – myjmy ręce i dezynfekujmy. Okazujmy sobie szacunek i zrozumienie.

 

Skrifstofur AFLs eru og verða opnar

Skrifstofur AFLs eru opnar og starfsfólkið á staðnum.  Við förum fram á að fólk sinni þeim erindum sem unnt er, með tölvupósti og síma, en við erum á staðnum. Það hefur alltaf verið stefna AFLs að á meðan félagsmennirnir vinna – þá vinna starfsmenn félagsins.  Við höfum aldrei látið fárviðri eða ófærð hafa áhrif á okkar störf og látum ekki Covid 19 hafa áhrif.  Á meðan okkar félagsmenn skúra gólf á sjúkrahúsum, vinna í fiski, afgreiða í verslunum og á allan hátt sinna sínum störfum – þá lokum við okkur ekki inni.

Virðum fjarlægðarreglur – þvoum hendur og sprittum.  Sýnum hvort öðru virðingu og tillitssemi.

Viðbrögð við Covid 19 faraldri - Covid – 19  pandemic and what it means for workers - W odpowiedzi na epidemię Covid 19.

Covid 
Mynd fengin af ufo-spain.com

Covid-19 faraldurinn mun hafa margvísleg áhrif á vinnumarkaðinn og atvinnu fólks.  Starfsfólks AFLs og starfsfólk Alþýðusambands Íslands er að taka saman nauðsynlegar upplýsingar um viðbrögð stjórnvalda við þeim samdrætti sem er orðinn á vinnumarkaði.

Við hvetjum félagsmenn til að vera í sambandi við félagið áður en það tekur mikilvægar ákvarðanir – m.a. til að tryggja réttindi sín. 

Lög um hlutabætur á móti skertu starfshlutfalli tóku gildi nú um helgina og við erum ennþá að reyna að ná utan um hvernig þær muni virka.  Starfsfólk Vinnumálastofnunar er að taka saman upplýsingar og útbúa umsóknarformin og vonandi opnar það allt nú fljótlega.

Samkvæmt okkar upplýsingum á að vera hægt að fá hluta-atvinnuleysisbætur á móti skertu starfshlutfalli allt niður í 25% starf.  Skerða verður starfshlutfall um a.m.k. 20% til að réttur myndist.

Þessar tímabundnu bætur skerða ekki rétt til atvinnuleysisbóta né rétt til bóta frá ábyrgðarsjóði ef fyrirtækið verður síðan gjaldþrota.

Nánari upplýsingar um hvað þarf til að sækja um bæturnar eru hér á síðunni.

Fylgstu með heimasíðu okkar og Facebókarsíðu – við munum uppfæra allar upplýsingar um leið og tilefni er til.

Síminn hjá okkur er 4700 – 300 og netfangið er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

Covid – 19  pandemic and what it means for workers

The ongoing Covid 19 pandemic will have a strong impact on the job market in Iceland as elsewhere. AFL´s officials and those of ASÍ (Icelandic Federation of Labour) are hard at work trying to gather necessary information about the ongoing changes and the effects of the new legislation about partial unemployment and other measures by the government.

We encourage our members to be in touch with us before they make important decisions regarding their jobs – to ensure that they maintain their rights.

The new law regarding partial unemployment benefits was only passed this weekend and we are still trying to understand all the nuances.  The officials of the Unemployment Agency (Directorate of Labour) www.vmst.is ) are writing guidelines and preparing the forms and hopefully the application process will be opened soon.

According to the new law employees are entitled to unemployment benefits with reduced work percentage – down to a 25% job percentage.  The job percentage must be cut 20% or more for the right to benefits.

These temporary unemployment benefits will not affect the individuals rights to unemployment or payments in case the firm in question goes bankrupt later.

Here on this page we have information about what is necessary to have at hand when applying for these temporary benefits.

Please follow our homepage and our Facebook page – we will try to update all information as they become available

Our telephone is 4700 300 and our email is This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

W odpowiedzi na epidemię Covid 19.

Epidemia koronawirusa będzie miała różny wpływ na zatrudnienie oraz rynek pracy.

Pracownicy AFLu wraz z przedstawicielami Krajowej Federacji Związków Zawodowych Alþýðusamband Íslands ASI gromadzą niezbędne informacje dotyczące reakcji rządu na zachodzące zmiany na rynku pracy.

Zachęcamy członków do pozostawania w kontakcie z nami przed podjęciem ważnych decyzji - w celu zabezpieczenia swoich praw.

Ustawa o częściowej rekompensacie dotycząca zredukowanego etatu pracy weszła w życie w ostatni weekend i wciąż staramy się ustalić, jak będzie ona działać. Urząd pracy zbiera informacje i opracowuje formularz wniosku i mamy nadzieję, że wkrótce będzie on już ogólnodostępny.

Według naszych informacji częściowa wypłata zasiłków dla bezrobotnych możliwa będzie przy obniżeniu  stopy zatrudnienia o 25%. Stopa zatrudnienia musi zostać zmniejszona o co najmniej 20%, aby uzyskać prawo do zasiłku.

Tymczasowe świadczenia nie naruszają prawa do zasiłku dla bezrobotnych ani prawa do świadczeń z funduszu gwarancyjnego w sytuacji bankructwa zakładu pracy.

Więcej informacji na temat ubiegania się o świadczenia, znajdują się tutaj

Śledź naszą stronę i stronę na Facebooku - przy każdej nadarzającej się okazji informacje są na bieżąco aktualizowane.