AFL starfsgreinafélag

Samningur við Keahotel

thumb_site-logoAFL Starfsgreinafélag gerði á dögunum samning við Keahotel um gistingu fyrir félagsmenn sína, um er að ræða gistingu á Hótel Kea Akureyri, Hótel Norðurlandi Akureyri, Hótel Björk í Reykjavík og Hótel Gígur í Mývatnssveit.  Panta þarf gistingu á viðkomandi hóteli í síma 460-2000 og taka þarf fram að greitt verði með hótel-gistimiða. Gistimiðana er svo hægt að kaupa á næstu skrifstofu AFLs, sjá nánar um verð:

Continue Reading

Samfélagslegt tap vegna svartrar vinnu smærri fyrirtækja 13,8 milljarðar á ári

thumb_leggurÍ tengslum við gerð kjarasamninga í vor skapaðist umræða um hvernig minnka mætti svarta atvinnustarsemi og bæta viðskiptahætti í landinu. Árangurinn var átaksverkefnið „Leggur þú þitt af mörkum?“ sem unnið var í samvinnu Ríkisskattstjóra (RSK), ASÍ og SA. Heimsótt voru yfir tvö þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki í sumar og fengu 55% þeirra athugasemdir. Rætt var við sex þúsund starfsmenn og reyndust 12% þeirra vinna svart, flestir á Vestfjörðum. Tap þjóðarbúsins vegna svartrar atvinnustarfssemi nemur 13,8 milljörðum á ári.

Continue Reading

Búið að draga!

Könnun sem framkvæmd var af Capacent Gallup um ýmis atriði er varða kjör og aðstæður félagsmanna AFLs Starfsgreinafélags og Einingar-Iðju er nú lokið.
Könnunin var einnig happdrættismiði, allir sem þátt tóku gátu unnið veglegan vinning
Búið er að draga út vinningshafa, eftirfarandi númer voru dregin út.

Continue Reading

Önnur verðlaun

Vinningshafa í myndasamkeppni AFLs sem lentu í öðru sæti eru

Verðlaunaafhendinga myndasamkeppni sumarsins 2011

thumb_myndasamk2011Í morgun fóru starfsmenn félagsins í heimsókn til Málingarþjónustu Hornafjarðar og afhentu fyrstu verðlaun í myndasamkeppni sumarsins 2011 þar sem keppt var um bestu myndina af eða úr sumardvalarstöðum félagsins.

Fyrstu verðlaun Canon myndavél hlaut Jón Benedikt Karlsson. Þeir vinningshafa sem hlutu önnur verðlaun, það er helgardvöl í orlofsíbúðum AFLs í Reykjavík eða á Akureyri, fá sent gjafabréf.

Í tilefni þess að félagið er að taka í notkun nýjar íbúðir hefur verið efnt til myndasamkeppni meðal félagsmanna um myndir til að hengja upp í íbúðunum. Myndirnar mega vera úr atvinnulífinu, af landslagi, af fólki eða hverju öðru sem fyrir augu ber á austurlandi. Veitt verða verðlaun í formi helgardalar í orlofsíbúðunum.

Ályktun kjaramálaráðstefnu verkamannadeildar

thumb_kjaramala2011AFL Starfsgreinafélag hélt sína árlegu  kjaramálaráðstefnu verkamannadeildar nú um helgina. Að þessu sinni var fjallað um Evrópusambandið, hvort innganga í það væri kostur eða ekki fyrir launafólk. Málinu var velt upp frá flestum  hliðum.

Meðfylgjandi er ályktun ráðstefnunnar

Continue Reading

Umsóknarfrestur íbúða um jól og áramót 2011/2012

thumb_manatun_2-5Frestur til að sækja um íbúð yfir jól og áramót 2011/2012 rennur út 15. nóvember 2011,  úthlutun mun svo fara fram miðvikudaginn 16. nóv. Öllum umsóknum verður svarað.  Hægt er að sækja um á skrifstofum félagsins á þar til gerðum eyðublöðum, einnig er hægt að sækja um á vef félagsins sjá Umsóknareyðublað