AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Aðalfundur  verslunar- og skrifstofudeildar  AFLs Starfsgreinafélags

Verður haldinn

14. ágúst 2020 kl. 12:15 – að Víkurbraut 4 Hornafirði

Dagskrá

  • Kjaramál
  • Skýrsla formanns deildar
  • Kjör stjórnar deildarinnar
  • Önnur mál

Boðið verður upp á fjarfund, þeir sem hyggjast notfæra sér það eru beðnir um að senda beiðni á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. um það fyrir kl. 11:00 þann 14. ágúst

Stjórn verslunar- og skrifstofudeildar AFLs

Jól og áramót - engin úthlutun orlofsíbúða

Íbúðir AFLs verða til frjálsrar leigu næstkomandi jól og áramót. Síðustu ár hefur íbúðunum verið úthlutað að loknu umsóknarferli en í ár verður opnað fyrir bókun á íbúðir félagsins um jól og áramót undir mánaðarmótin ágúst / september og verður það kynnt með auglýsingu og með tölvupósti á félagsmenn sem eru á sendingarlista félagsins, til að tryggja að allir sitji við sama borð varðandi aðgengi að íbúðunum. 

Íbúðirnar verður aðeins hægt að leigja í viku, þ.e. frá 22. - 29. des, og frá 29. des til 4. janúar.  Staðfestingargjald verður kr. 5.000 og er óendurkræft.  Það þýðir að staðfesti félagsmaður að hann ætli að leigja íbúð á þessum tímabilum en fellur síðan frá leigu síðar - verður staðfestingargjaldið ekki endurgreitt.  Endurgreiðslur á greiddum leigum fara að öðru leyti eftir almennum endurgreiðslureglum.

Ástæða er til að vara fólk við að ef fallið er frá leigum með stuttum fyrirvara eru ekki miklar líkur á að íbúðir endurleigist þar sem fólk gerir áætlanir varðandi jól og áramót með góðum fyrirvara.

Ástæða þessara breytinga er að  síðustu 2 ár hafa íbúðir jafnvel staðið auðar.  Þetta er sennilega af því að í fjölmennum fjölskyldum sækja jafnvel margir um íbúð til að tryggja að fjölskyldan fái íbúð.  Oft hafa síðan fleiri en einn úr sömu fjölskyldu fengið íbúð og þá hefur verið misbrestur á að fólk afþakki íbúðir sem það ekki þarf, tímanlega.  Þeir sem hafa fengið synjun í umsóknarferlinu - eru síðan oft búnir að breyta áætlunum sínum þegar kemur að því að endurúthluta.

Vinsamlega athugið að ekki er hægt að skrá sig fyrir leigu fyrirfram og starfsfólk félagsins mun ekki taka við óskum um íbúðir um jól og áramót heldur verða félagsmenn að bóka sjálfir eða hafa samband við skrifstofu félagsins eftir að opnað verður fyrir leigur.

 

 

Verslunar og skrifstofufólk. Hvað langar þig að læra?

Á tímum sem þessum er mikilvægt að hlúa að sjálfum sér. Sjálfstyrkingarnámskeið er eitt af því sem fellur undir starfstengda styrki. Við styrkjum einstaklinga um allt að 90% vegna námskeiða eða fræðslu. Líka á netinu! Nú er tækifærið! Einnig er hægt að sækja um styrk fyrir áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum. Hámark 1 árs aðgangur í einu.

2020 Verslunar Skrifstofu laera2020 Verslunar Skrifstofu

 

 

Frír aðgangur að námskeiðum

namskeid2020

Allt sem hugurinn girnist, bæði starfsmiðuð námskeið og almenn námskeið, árs áskrift eða stök námskeið. Endilega skoðaðu framboðið og sjáðu hvort eitthvað hittir í mark hjá þér!

Sjóðirnir hafa gert samninga við eftirtalda aðila:

https://www.mognum.is/ (Mögnum)

https://taekninam.is/ (Tækninám)

https://frami.is/ (Frami)

http://www.ntv.is/ (Nýi tölvu-og viðskiptaskólinn)

https://netkennsla.is/ (Netkennsla)

https://gerumbetur.is/ (Gerum betur)

https://island.dale.is/ (Dale Carnegie)

https://fraedslumidstodvar.is/ (Sjá hér allar símenntunarmiðstöðvar)

Vegna aðstæðna í íslensku samfélagi vegna covid-19 ákváðu stjórnir Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar að bjóða einstaklingum og fyrirtækjum uppá þann valkost að sækja námskeið á netinu þeim að kostnaðarlausu í ákveðinn tíma.

Átakið gildir frá 15. mars til og með 31. ágúst 2020 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem haldin eru innan þessa sama tímaramma eða áskrift keypt innan þess tímaramma.

Hægt er að sjá lista yfir fleiri fræðsluaðila og ráðgjafa í námi fullorðinna á heimasíðu sjóðanna: http://landsmennt.is/frambod-a-nami/

Endurnýjuð hús á Einarsstöðum - nú sérstaklega fyrir fatlaða

hús 12

AFL veitti í dag viðtöku þremur húsum í Orlofsbyggðinni að Einarsstöðum eftir að þau hafa verið nánast algerlega endurnýjuð og stækkuð lítillega.  Þetta voru hús 10, 11 og 12 - og var hús 12 innréttað sérstaklega þannig að félagsmaður í hjólastól gæti athafnað sig nánast án aðstoðar.  Það er með stærra baðherbergi en almennt gerist og þá var annað svefnherbergjanna stækkað svo unnt væri að athafna sig þar í hjólastól.  

Í dag var verið að leggja lokahönd á skábraut frá bílastæði upp að húsi 12, með 5% halla og er það í samræmi við reglur um hjólastólaaðgengi.

Nýjar útihurðir voru ekki komnar og koma ekki fyrr en í júlí en þá verða allar hurðir 90 cm breiðar.  Hægt er að ganga um verandarhurðina sem opnast 90cm.

Þá verður á næstu dögum komið fyrir slám og sturtusæti til að auðvelda fötluðum einstakling að njóta dvalar þar án aðstoðar.

Á myndinni eru þeir Andri Guðlaugsson, Mannvit verkfræðistofu, sem hefur haft eftirlit með framvæmdum og hönnun, og Sigurður Sigurjónsson, byggingameistari hjá Tréiðjunni Eini sem hafði veg og vanda af breytingunum.

AFL á nú 16 hús á Einarsstöðum og þar af hafa 9 verið tekin algerlega í gegn og er reiknað með að endurnýjun húsanna ljúki á næstu 2 -3 árum.

Skiptaverð lækkar 1. júlí - samt hærra en um áramót

Verulegar sveiflur hafa verið á skiptaverði afla fiskiskipa það sem af er árinu. Olíuverð hraðlækkaði eftir að Covid-19 lamaði flug og samgöngur að mestu víða um heim en fer hækkandi aftur nú. Þetta hefur haft áhrif á skiptaverð.

Þegar afli er seldur til vinnslu innanlands verður skiptaverðið 73% af aflaverðmætinu þegar hann er seldur óskyldum aðila en 73,5% þegar hann er seldur skyldum aðila (sjá þó fyrri frétt um ágreining við SFS um þetta).

Skiptaverð á frystiskipunum verður 73,5% af FOB verðmætinu og 68% af CIF vermætinu í júlí. Þegar rækja er fryst um borð verður skiptaverðið í júlí 70,5% af FOB verðmætinu og 65% af CIF verðmætinu.

skiptaverð 2020

Þessi tafla er tekin af heimasíðu Sjómannasambandsins  https://www.ssi.is/ og þar er að finna meiri fróðleik um skiptaverð.  (Rétt er að minna á að enn er fyrir Félagsdómi sú ákvörðun SFS um að lækka skiptaprósentu um 0,5% í viðskiptum til skyldra aðila. Sjá nánar á síðu Sjómannasambandsins.

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi