1. maí
Þann 1 apríl s.l. hækkuðu laun samkvæmt kjarasamningum félagsins sem hér segir:
AFL starfsgreinadeild við Samtök atvinnulífsins og við Bændasamtökin
Taxtahækkun 24.000 krónur
Almenn hækkun 18.000 krónur
Kjaratengdir liðir 2,5%
AFL verslunar- og skrifstofudeild við Samtök atvinnulífsins
Taxtahækkun 24.000 krónur
Almenn hækkun 18.000 krónur
Kjaratengdir liðir 2,5%
AFL iðnaðarmannadeild við Samtök atvinnulífsins
Almenn hækkun 18.000 krónur auk hliðrunar í launatöflum
Kjaratengdir liðir 2,5%
AFL starfsgreinadeild við Samband sveitarfélaga
Taxtahækkun 24.000 krónur
AFL starfsgreinadeild við Ríkið vegna stofnana þess -með fyrirvara um samþykkt samningsins
Taxtahækkun 24.000 krónur á launaflokka 1-17
Taxtahækkun 18.000 á launaflokka þar fyrir ofan
AFL við Hrollaug, landssamband smábátaeigenda og samband smærri útgerða
Taxtahækkun 24.000 krónur
Kauptrygging og aðrir launaliðir 7,52%
Lágmarkstekjutrygging fer í 335.000 krónur á mánuði
Szanowni Państwo, niniejsza wiadomość jest skierowana do członków AFLu, którzy zarezerwowali domki w okresie Wielkanocy 2020. W ciągu ostatnich kilku dni wywierano znaczną presję na AFL, aby zamknąć domki letniskowe.Wszyscy słyszeliśmy o przepisach władz dotyczących kwarantanny, aby ludzie pozostali w domach na Wielkanoc.
Ufając prywatnym właścicielom domków letniskowych i pozostawiając im decyzję co do zastosowania zaleceń rządowych w związku z COVID 19, tak i AFL wierzy swoim członkom w tej sprawie. Dlatego nasze domki nie będą zamknięte.
Chcemy jednak zachęcić ludzi do stosowania się do zaleceń Departamentu Ochrony Ludności i Zarządzania Kryzysowego i pozostania w domu. Anulując wynajem dzisiaj, otrzymasz zwrot kosztu wynajmu.
Warto zwrócić uwagę na to, co wydarzyło się w weekend.Pomimo próśb o pozostanie w domu. ludzie i tak zdecydowali się podróżować, przez co służby ratownicze musiały wielokrotnie wyjeżdżać na pomoc. Prosimy również osoby, które powinny zostać odizolowane lub poddane kwarantannie - aby nie jechały na domki i dostosowały się do zaleceń Departamentu Ochrony Ludności i Zarządzania Kryzysowego.
Uwaga,nie dezynfekujemy domków letniskowych i nie odpowiadamy za to czy zostaną one „zdezynfekowane”. Nie wiemy, czy przebywał tam jakikolwiek chory ponieważ ludzie nie zawsze nam wszystko zgłaszają. W każdym domku znajduje się płyn do dezynfekcji, mycia rąk i czyszczenia dlatego prosimy o dokładne czyszczenie wszystkich powierzchni kontaktowych.
Skilaboð til félagsmenna AFLs sem eiga bókuð sumarhús AFLs um páska 2020
Verulegur þrýstingur hefur verið á félagið síðustu daga að loka orlofshúsum félagsins og öll höfum við heyrt áskoranir sóttvarnaryfirvalda um að fólk verði heima um páska.
AFL hefur talið að á meðan venjulegum sumarbústaðaeigendum er treyst til að ákveða sjálfir hvort þeir verði við tilmælum yfirvalda - sé félagsmönnum AFLs einnig treystandi. Því verður bústöðum okkar ekki lokað.
Við viljum hins vegar hvetja fólk til að fara að tilmælum sóttvarnaryfirvalda og vera heima - og munum endurgreiða leigur ef fólk afbókar í dag.
Það er vert að vekja athygli á því sem gerðist um helgina - þegar fólk var á ferðalögum þrátt fyrir beiðni um að vera heima - og lenti í vandamálum og slysum og teppti viðbragðsaðila frá öðrum störfum. Við biðjum líka fólk sem á að vera í sóttkví eða einangrun - að fara ekki í bústaðina eða vera yfirhöfuð á ferðinni og hlýða "Víði".
Við vekjum athygli á að við sótthreinsum ekki bústaðina og ábyrgjumst ekki að þeir séu "sótthreinir". Við vitum ekki til að neinir veikir hafi dvalist þar - en fólk segir okkur ekki allt. Í bústöðunum er handþvottaspritt og hreinsispritt og við hvetjum fólk til að þrífa vel alla snertifleti.
Meðalverð á skráðu gasolíuverði á Rotterdammarkaði hefur lækkað verulega að undanförnu vegna covid-19 faraldursins. Þetta olíuverð er notað sem viðmiðun í kjarasamningi sjómanna til að ákvarða skiptaverð til sjómanna.
Fyrir tímabilið frá og með 21. mars til og með 20. apríl síðastliðinn var meðalverð á olíunni sem notað er til viðmiðunar 262,20 $/tonn og hafði þá lækkað úr 379,96 $/tonn frá síðasta viðmiðunartímabili.
Þetta þýðir að skiptaverð, þegar ísaður afli er seldur skyldum aðila, hækkar úr 70,5% í 75,5% af aflaverðmæti skipsins. Þegar ísaður afli er seldur óskyldum aðila eða á fiskmarkaði hækkar skiptaverðið úr 70% í 75% af aflaverðmætinu (uppboðskostnaður á fiskmörkuðunum dreginn frá áður en skiptaverð er reiknað).
Á frystitogurunum sem selja með fob söluskilmálun hækkar skiptaverðið úr 72% í 74,5% af fob verðmætinu og ef aflinn er seldur með cif söluskilmálum hækkar skiptaverðið úr 66,5% í 69% af cif verðmætinu.
Á skipum sem frysta rækju um borð hækkar skiptaverðið úr 69% í 71,5% af fob verðmætinu og úr 63,5% í 66% af cif verðmætinu.
Skiptaverð þegar siglt er með uppsjávarfisk á erlendan markað er óbreytt 70% af söluvirði aflans. Þegar siglt er með ferkan fisk á erlendan markað er skiptaverðið einnig óbreytt eða 66% af heildarsöluverðmæti aflans.
Framangreindar breytingar taka gildi frá og með 1. maí næstkomandi. Sjá nánar https://www.ssi.is/kjaramal/skiptaverd/