Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Sjómenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og IMA samþykktu nú í desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr 100.000 kr. í 130.000 kr. þar með hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.-
Hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2020 og gildir gagnvart því námi sem hefst frá og með þeim tíma.
Félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags höfðu að meðaltali 619.000 í heildarlaun fyrir septembermánuð miðað við 100% starf. Miðgildi launa félagsmanna - þ.e. jafnmargir eru launahærri og jafnmargir eru launalægri en miðgildið - er 576.000 kr. Þetta er meðal niðurstaða viðhorfs-og launakönnunar AFLs Starfsgreinafélags sem Gallup framkvæmir árlega fyrir AFL og Einingu Iðju á Akureyri. Úrtak félagsins var 1.500 félagsmenn og svarhlutfall rétt innan við 50%.
Launahæstir innan félagsins voru sjómenn en meðaltekjur þeirra í septemberr voru kr. 1.069.000. Starfsmenn við framleiðslustörf voru með 715.000 að meðaltali í septemberr en þeir félagsmenn sem vinna iðnaðarstörf, við mannvirkjaframkvæmdir eða vinna við tækjastjórnun og vélgæslu eru með yfir 600.000 í meðallaun.
Lægst meðallaun eru í umönnun og störf í skólum og leikskólum. Stuðningsfulltrúar, skólaliðar og starfsmenn leikskóla eru með 417.000 í meðallaun í september en starfsmenn við umönnun með 468.000.
Langhæstu meðallaunin voru á Vopnafirði og Neskaupstað - eða um 690.000 á hvorum stað. Lægst meðallaun voru í minni þéttbýliskjörnum og með ströndinni suður að Höfn - eða kr. 521.000 kr. fyrir september. Karlar höfðu mun hærri heildartekjur að meðaltali en konur eða 683.000 vs. 513.000.
Óverulegur munur er á meðallaunum eftir aldri að undanskildum yngsta hópnum 18- 23 ára sem hefur lægri heildartekjur en þeir sem eldri eru. Þá er óverulegur munur á tekjum eftir menntun og hafa þannig félagsmenn AFLs með mesta menntun svipaðar tekur og félagsmenn með minnsta menntun. Þeir sem lokið hafa framhaldsskólaprófi hafa lægstar meðaltekjur. Sjá myndina hér að ofan.
Félagsmenn AFLs vinna að meðaltali um 10 yfirvinnutíma á viku og hefur yfirvinna farið minnkandi frá því að við hófum að mæla hana.
Könnunin í heild verður aðgengileg á heimasíðu AFLs á næstu dögum.
Aðeins um 3,6% félagsmanna eru ósátt við AFL Starfsgreinafélag og er það besta niðurstaða félagsins frá því að fyrst var farið að mæla viðhorf félagsmanna til þess. Þá eru félagsmenn tilbúnari nú en áður til þess að taka þátt í starfi félagsins. Yfir 60% aðspurðra eru jákvæðir fyrir því að taka þátt í starfinu en voru 44% 2014.
92% félagsmanna telja að verkalýðshreyfingin eigi að taka skýra afstöðu og jafnvel forystu í samfélagsmálum - og er það hækkun frá um 83% 2013. Félagsmenn AFLs telja verkalýðshreyfinguna helst eiga að beita sér í skattamálum, heilbrigðismálum, vaxtamálum og húsnæðismálum.
Um 10% félagsmanna finnst félagið ekki hafa staðið sig vel í baráttunni en 65% telja félagið standa sig vel.
Nánar verður fjallað um viðhorfskönnun AFLs og Einingar Iðju á næstu dögum - en úrtak AFLs var alls 1.477 félagsmenn og svarhlutfall var 45%.
Eining Iðja hefur hafið birtingu á niðurstöðum sínum og eru þær ekki ósvipaðar og niðurstöður AFLs
Námsver ehf og Austurbrú óska eftir að ráða starfsmann til þrifa og umsjónar að Búðareyri 1, Reyðarfirði.
Starfið felur í sér:
Umsjón með húseign og búnaði.
Dagleg þrif.
Bókanir á sölum í námsverinu.
Umsjón með kaffiveitingum.
Umsjón með minni háttar viðhaldsverkefnum, Um er að ræða fullt starf og mikilvægt að starfsmaður geti hafð störf sem fyrst á nýju ári.
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur til menntunar – en áhersla lögð á gott viðmót og góð samskipti.
Auk þess þátttaka í tilfallandi verkefnum vegna þeirrar starfsemi sem er í námsverinu hverju sinni.
Upplýsingar veita Sverrir hjá Námsver (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) og Jóna hjá Austurbrú (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.)