Stjórnvöld hafa brugðist
Stjórn AFL Starfsgreinafélags samþykkti á fundi sínum sem var að ljúka eftirfarandi ályktun. Miklar umræður voru á fundinum um stöðu efnahagsmála.
Stjórn AFL Starfsgreinafélags samþykkti á fundi sínum sem var að ljúka eftirfarandi ályktun. Miklar umræður voru á fundinum um stöðu efnahagsmála.
Þann 1. janúar hækkar kauptrygging háseta um 6.500 krónur og tímakaup og starfsaldursálag taka mið af þeirri hækkun. Aðrir liðir hækka um 2.5%. Fæðispeningar taka ekki breytingum fyrr en 1. júní.
Starfsmenn Alcoa fá 2% samningsbundna hækkun auk 2% hækkunar samkvæmt ákvörðun fyrirtækisins.
Aðrir félagsmenn eru ekki að fá samningsbundnar hækkanir fyrr en í júní.
Þann 1. janúar taka gildi ný lög um tekjuskatt sem er nokkuð frábrugðin því sem við höfum búið við undanfarin ár. Áfram verðum við með staðgreiðsluskatt en hann er nú í þremum þrepum. Af tekjuskattsstofni að 2.400.000 kr.(200.000 pr. mánuði) reiknast 37,22% í staðgreiðslu. Af næstu 5.400.000 kr. (450.000 pr. mánuði) reiknast 40,12% skattur. Af því sem umfram er 7.800.000 kr. (650.000 pr. mánuði) reiknast 46,12% skattur. Innifalið í þessum prósentum er útsvarið. Launafólk er ábyrgt fyrir að reiknuð sé staðgreiðsla í samræmi við lögin, starfi það hjá fleiri en einum vinnuveitenda. Persónuaflsáttur 44.205 kr. Sjómannaafsláttur 987 kr. á dag. Frítekjumark barna fædd 1995 og síðar er 6% af tekjum umfram 100.745. Tryggingagjald 8.65%. En hvað þýðir þetta fyrir launamanninn? Sjá nánar.
Aðalfundur í sjómannadeild AFLs var haldinn í gær á Reyðarfirði. Undir liðnum kjaramál var eftirfarandi ályktun samþykkt um skattamál sjómanna.
Aðalfundur sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags átelur stjórnvöld fyrir lagabreytingar á skattaumhverfi sjómanna án þess að tekið sé tillit til sögu sjómannaafsláttarins. Krafa fundarins er að lögin verði afturkölluð eða að sjómenn fái í hans stað dagpeninga líkt og aðrar stéttir sem stunda vinnu fjarri heimili og skorar fundurinn á útvegsmenn að standa með sjómönnum í þessum efnum. Fundurinn minnir jafnframt á að sjómenn þurfa einir stétta að greiða fyrir eldsneyti á sínum vinnustað með þátttöku í olíukostnaði útgerðar.
Á fimmtudag útskrifaði Starfsendurhæfing Austurlands fyrstu tvo hópa þáttakenda í starfsendurhæfingu. Annar hópurinn, níu þátttakendur voru útskrifaðir á Egilsstöðum en í Fjarðabyggð voru luku 12 einstaklingar endurhæfingunni. Nokkrir til viðbótar hafa verið í hópunum en hætt m.a. til að hefja störf eða nám.