Sjónarmið AFLs Starfsgreinafélags urðu undir á formannafundi ASÍ í febrúar mánuði þegar frestun umsaminna launahækkana fékk stuðning meirihluta formanna Alþýðusambandsfélaga. Arðgreiðslur HB Granda hafa síðustu daga valdið miklum óróa á vinnumarkaði og hafa m.a. forystumenn verkalýðshreyfingarinnar skorað á fyrirtækið að "standa við umsamdar launahækkanir".
ALCOA hefur tilkynnt ýmsar ráðstafanir til að treysta rekstrargrundvöll fyrirtækisins og meðal aðgerðanna er að skerða arðgreiðslur sem fyrirhugaðar voru 25 maí um 82%. Þannig verða greidd 3cent á hvern hlut í stað 17 centa sem áfromað var.
Ýmsar aðgerðir eru fyrirhugaðar svo sem hlutafjár-og skuldabréfaútboð að upphæð 1,1 milljarð dollara auk ýmissa sparnaðaraðgerða. Sjá nánar hér
Fljótsdalshérað tapaði í spurningakeppninni Útsvar sl. föstudagskvöld fyrir liði Kópavogsbæjar. Það vakti athygli margra að Þorsteinn Bergsson, klikkaði á spurningu úr Íslendingasögunum. Vegna fjölda áskorana skal bent á að Þorsteinn hafði rétt fyrir sér því. Umrætt atvik er spurt var um, er að finna í VígaStyrssögu eins og sjá má hér
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 (171,15 verslunarmenn) unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), skulu vera sem hér segir fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki:
1. mars 2009 kr. 157.000 á mánuði.
Einn félagsmanna AFLs hafði samband við skrifstofu félagsins og sýndi auglýsingu frá fyrirtæki sem kallar sig "Smart Jobs" og birtist í visir.is. Þar segir að fyrirtækið hafi nýlega opnað vinnumiðlun í Reykjavík, New York og London - til þess að útvega Íslendingum atvinnu - aðallega í Englandi. Fyrirtækið rukkar skráningargjald fyrir þjónustuna.
HB Grandi mun greiða hluthöfum 8% arð af 2,3 milljarða króna hagnaði síðasta árs. Verkalýðsfélag Akraness fjallar um málið á heimasíðu sinni í dag. Sjá hér
Á vorfundi SGS semáformað er að halda í Vestmannaeyjum í maímánuði verður fjallað um áhrif af stöðu efnahagsmála á velferðarkerfið. Ljóst er að verulegur halli er á ríkisfjármálum á þessu ári og kannski lítil ástæða til að ætla að um verulegan tekjuauka verði á næstunni. Alþjóða gjalddeyrissjóðnum hefur verið lofað að fjárlög verði hallalaus innan fárra ára.