Aðalfundur Sjómannadeildar AFLs
Hörð umræða var um stöðu kjaradeilu sjómanna á aðalfundi Sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags í gær. Fundamenn töldu að forysta SSÍ hefði verið of fljót á sér að gera kjarasamning þann 14. nóvember sl. og að ekki hefði verið fullreynt að ná fram frekari kröfum sjómanna. Meðal atriða sem fundarmenn töldu að fylgja ætti eftir af fullri hörku eru mönnunarmál á fiskiskipum, lækkun eða afnám olíugjalds, sjómannaafslátt og sjómenn verði í fríu fæði í róðrum.
Mikill einhugur var meðal fundarmanna - en aðalfundur deildarinnar var vel sóttur og komu fundarmenn m.a. frá Höfn í Hornafirði og norðan frá Vopnafirði en fundurinn var haldinn í húsnæði félagsins á Reyðarfirði.
Stjórn deildarinnar til næsta árs er skipuð þeim:
Grétar Ólafsson, Vopnafirði, formaður.
Sigurður K. Jóhannsson, Neskaupstað, varaformaður.
Grétar Smári Sigursteinsson, Höfn, ritari.
Jón B. Kárason, Fáskrúðsfirði, meðstjórnandi.
Guðjón Egilsson, Seyðisfirði, meðstjórnandi.
Varamenn í stjórn eru:
Guðmundur Óskar Sigjónsson, Reyðarfirði
Óskar Marinó Sigurjónsson, Fáskrúðsfirði
Sævar Jónsson, Vopnafirði.