Landsmennt - reglur
Fræðslusjóður SA og verkafólks á landsbyggðinni úthlutar á samningstímanum einstaklingsstyrkjum til félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem eru aðilar að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) þó ekki þeirra aðildarfélaga SGS sem mynda Flóabandalagið.
Hvaða skilyrði þarf félagsmaður að uppfylla til að eiga rétt á styrk til starfsmenntunar hjá Landsmennt, starfsmenntun Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni?
- Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Landsmenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum. (Breytt síðast 1. janúar 2016)
- Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
- Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi/kvittun til viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá dagsetningu reiknings.
- Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
- Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að tuttugu og fjóra mánuði þeim rétti til starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum. Að tuttugu og fjórum mánuðum liðnum, frá því hann hvarf af vinnumarkaði, fellur réttur hans að fullu niður.
- Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
- Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
- Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Landsmenntar, heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að 3 mánuðum liðnum fellur réttur hans niður.
Með umsókn skal skila
Frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.
Vegna umsóknar um styrk fyrir nám eða námskeið erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku. Þá verður að vera sundurliðuð kostnaðarskipting, þ.e. ekki er greitt fyrir ferðir, gistingu og uppihald. Einnig þarf að fylgja með bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum. Brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkilegur. Sé þýðing ekki fyrir hendi fæst ekki greiddur styrkur. Þetta á einnig við um nám/námskeið hjá erlendum vefsíðum.
Hve mikið er greitt ?
Greitt er að hámarki kr. 130.000.- á ári f.o.m. 1. janúar 2020. Miða skal við almanaksárið. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 90% af námskostnaði. (gildistími frá 1.jan. 2023 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma). (Síðasta breyting gerð í des. 2022).
Frístunda/tómstundanámskeið
Landsmennt veitir styrki vegna tómstundanámskeiða ýmiskonar og er endurgreiðsla vegna þeirra 80% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 130.000.- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs (gildistími frá 1. jan. 2022 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma). (Síðasta breyting gerð í des. 2022).
Uppsafnaður réttur; aukinn styrkur til náms
Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár eiga rétt á styrk allt að kr. 260.000,- eða síðustu þrjú ár eiga rétt á allt að kr. 390.000,- eins og verið hefur fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000,- á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar frá hámarki.
Raunfærnimat
Vegna kostnaðarþátttöku einstaklinga í raunfærnimati (félagsmenn aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins; þ.e. fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi), geta þeir sótt um allt að 80% í styrk vegna þess.
Starfstengt netnám
Vegna netnámskeiða þarf námskeiðið að hafa skilgreint upphaf, endi og vera með leiðbeinanda. Ef um áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum/kennsluefni er að ræða, styrkir sjóðurinn að hámarki aðgang til 1 árs.
Styrkir vegna íslenskunáms
Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um allt að 80% styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Landsmenntar.
Réttur ellilífeyrisþega (félagsmenn aðildarfélaga SGS)
Ellilífeyrisþegar (félagsmenn aðildarfélaga SGS) halda rétti sínum til einstaklingsstyrkja í allt að 24 mánuði frá því þeir hætta að vinna. Þetta er í samhengi við réttindi þeirra sem eru á tímabundinni örorku og annað sbr. 5. lið í reglum um einstaklingsstyrki. (samþ. í mars 2012)
Ferða-og dvalarstyrkir í tengslum við nám/námskeið
Þeir einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám/námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Um er að ræða einstaklingsstyrk og sótt er um á sérstöku eyðublaði. Styrkir eru afgreiddir af viðkomandi stéttarfélagi í umboði Landsmenntar. (tók fyrst gildi 1.jan.2013)
Reglur um sérstaka ferða-og dvalarstyrki:
• Akstur 50% af almennu kílómetragjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni skv. taxta ferðakostnaðarnefndar.
• Ekki er tekið þátt í ferðakostnaði vegna aksturs sem er innan við 12 km frá námskeiðsstað eða skóla.
• Varðandi akstur og flug er alltaf gert ráð fyrir að menn velji ódýrustu leiðina.
• Flug: Heimilt verði að niðurgreiða kostnað um allt að 80% af hverju flugfargjaldi. (gildistími frá 1. jan. 2023). (Síðasta breyting gerð í des. 2022).
• Gisting: Heimilt verði að niðurgreiða hverja gistinótt á hótelum/gistiheimilum um að hámarki kr. 6.000.- þó aldrei hærra en 80% af verði gistingar pr. sólarhring. (gildistími frá 1.jan.2023). (Síðasta breyting gerð í des. 2022).
Ferða-og dvalarstyrkir eru afgreiddir sér, en dragast frá hámarki einstaklingsstyrkja.
Endurnýjaðar reglur gilda f.o.m. 1. júlí 2013.
Sækja reglur um ferða-og dvalarstyrki
Áfrýjunarréttur
Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til stjórnar Landsmenntar til afgreiðslu.
Breyting á starfsreglum
Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og var síðast breytt 1. janúar 2020.