Orlofsuppbót
Upphæðir orlofsuppbóta
Upphæð orlofsuppbótar fer eftir því hvaða kjarasamningi er unnið eftir.
Starfshópur | 2024 | 2023 | Greiðsludags. |
Verkamenn (hótel og veitingast.) | 58.000 kr | . | 1. juní |
Iðnaðarmenn | 58.000 kr | . | 1. júní |
Iðnnemar | 58.000 kr | . | 1. júní |
Starfsmenn sveitarfélaga | . | 55.700 kr | 1. maí |
Starfsmenn ríkisstofnana | . | 56.000 kr | 1. júní |
Alcoa Fjarðarál | 214.600 kr | . | 1. júní |
Verslunar og skrifstofufólk | 58.000 kr | . | 1. juní |
Starfsmenn á bændabýlum | 58.000 kr | . | 1. juní |
Starfsmenn á/við línu og net | 58.000 kr | . | 1. juní |
Réttur til orlofsuppbótar:
Almenni markaðurinn, verkafólk, verslunar og skrifstofufólk
Uppbótin greiðist þann 1. juní miðað við starfshlutfall og starfstíma á árinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1. viku í maí
Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótanna.
Starfsmenn hjá sveitarfélögum
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí og 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs sbr. 8. gr. laga nr. 95/2000. Sjá einnig gr. 11.1.8. Persónuuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofslaun. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp við starfslok starfsmanns
Sjómenn fá ekki greidda orlofsuppbót.
Starfsmenn hjá Ríkinu
Þann 1. júní skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda orlofsuppbót, greidd er full uppbót til þeirra sem verið hafa í fullu starfi næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Þeir starfsmenn sem látið hafa af störfum á orlofsárinu eftir a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) samfellt starf fá greitt hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.
Alcoa Fjarðarál
Uppbótin greiðist með maílaunum og miðað við starfshlutfall og starfstíma á árinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1. maí. Orlofsuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum.
Starfsmenn á bændabýlum
Heimilt er að greiða desember- og orlofsuppbót jafnharðan óski starfsmaður eftir því, enda sé gengið frá því í ráðningarsamningi. Ofan á mánaðarlaun kemur þá hlutfall af desember- og orlofsuppbót miðað við full starf 173,33 klst. á mánuði. Á árinu 2022 kr. 83,89 á klukkustund.