Stytting vinnuvikunnar Verslunar og skrifstofufólks 2019
Í kjarasamningi verslunar og skrifstofufólks sem gengið var frá í apríl s.l eru ný ákvæði um styttingu vinnutímans sem taka gildi 1. janúar 2020:
Allir eiga rétt á að fá styttingu vinnutíma líka þeir sem eru í hlutastarfi.
Dæmi um útfærslu
- Starfsmaður styttir vinnudaginn um 9 mínútur á hverjum degi og fer heim fyrr sem því nemur
- Starfsmaður safnar styttingunni saman til að taka hana út t.d. vikulega, á 2ja vikna fresti, mánaðarlega eða safnar upp yfir lengra tímabil. Hann vinnur áfram sama vinnudag
- Starfsmaður getur ekki stytt daglega viðveru sína á vinnustaðnum eða safnað styttingunni. Hann vinnur því áfram sama vinnudag og nú en fær greidda yfirvinnu fyrir 9 mínútur á dag.
Hver er styttingin?
- 9 mínútur á dag
- 45 mínútur á viku
- 1 klst. og 30 mínútur á tveggja vikna fresti
- 2 klst. og 15 mínútur á þriggja vikna fresti
- 3 klst. á fjögurra vikna fresti
- 3 klst. og 15 mínútur á mánuði (m.v. meðallengd mán á ári)
- 19 klst. og 30 mínútur á 6 mánaða tímabili (2,65 dagar skrifstofa/2,52 dagar í verslun)
- 35 klst. og 33 mínútur á ári (4,84 dagar á skrifstofu/4,59 dagar í verslun)
Ef kaffitímar eru felldir niður er hægt að stytta vinnutíma starfsmanna meira eða sem hér segir:
- 15 mínútur á dag/0,25 á skrifstofu
- 35 mínútur á dag/0,58 í verslun
- 1 klst. og 15 mínútur á viku/1,25 á skrifstofu
- 2klst. og 55 mínútur á viku/2,92 í verslun
- 5 klst. og 25 mínútur á mánuði/5,42 á skrifstofu á mánuði
- 12 klst. og 35 mínútur á mánuði/12,57 í verslun á mánuði
- Um 59,25 klst. á ári eða 8 daga á skrifstofu
- Um 137,52 klst. á ári eða 17,75 dagar í verslun