Konur taka af skarið, Egilsstöðum 2. mars 2019
Viltu láta til þín taka og hafa áhrif á verkalýðsbaráttuna og samfélagið?
Laugardaginn 2. mars kl. 11:00 til 17:00 í sal AFLs Starfsgreinafélags, Miðvangi 2-4 Egilsstöðum.
Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitafélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Skráning skal berast í síðasta lagi föstudaginn 28. febrúar á netfangið Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða í síma 461 4006.
Dagskrá:
- Að bjóða kynjakerfinu birginn
- Staða verkalýðsbaráttunnar í dag
- Uppbygging verkalýðsfélaganna
- Leiðtogaþjálfun
- Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri
- Að starfa í verkalýðshreyfingunni