Kynning og afgreiðsla nýrra samninga
Unnið er að gerð kynningarefnis um nýjan kjarasamning sem undirritaður var í gærkvöldi. Upp úr helgi ætti efnið að verða til og verður þá m.a. birt hér á heimasíðu félagsins - á íslensku, pólsku og ensku. Þá er verið að undirbúa kynningarfundi sem haldnir verða á flestum þéttbýlisstöðum félagssvæðisins. Ef félagsmenn óska eftir kynningu á vinnustað sinn þá er þeim bent á að hafa samband á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða í gegnum trúnaðarmann sinn og mun félagið verða því við þeim óskum eftir fremsta mætti.
Kjarasamningurinn verður afgreiddur í atkvæðagreiðslu á heimasíðu AFLs - á mínum síðum. Því er mikilvægt fyrir félagsmenn að tryggja sér aðgang að "mínum síðum" en til þess þarf farsímanúmer og/eða netfang að vera skráð í kerfum AFLs. Hægt er að koma þessum upplýsingum áleiðis til félagsins með pósti á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.. Opnað verður fyrir kosningu seinnipart næstu viku eða um svipað leyti og kynningar hefjast.