Fiskimjölsverksmiðjur - kosning um kjarasamning að hefjast!
Nú er að hefjast kosning meðal starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum á félagssvæði AFLs um nýgerðan kjarasamning við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn sem gerður var sl. þriðjudag - tekur mjög mið af samningi SGS frá því í vor - en gildir í 6 ár eða allt til 2025. Nokkrar áherslubreytingar eru í samningnum - m.a. er launaþrepum fækkað úr 15 í níu og framganga innan töflu er hraðað.
Kosið er á "mínum síðum" (sjá hlekk hér að ofan) og til að fá aðgang að þeim þarf netfang eða símanúmer þeirra sem eru á kjörskrá að vera skráð í kerfi AFLs. Ef einhver telur sig eiga rétt til að taka þátt í kosningunni en hefur ekki fengið skilaboð þar að lútandi - getur viðkomandi sent póst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. með athugasemd. Athygli er þó vakin á því að þó svo að víðar séu greidd laun skv. launatöxtum fiskimjölsverksmiðja - eru aðeins starfsmenn er starfa í verksmiðjunum sjálfum á kjörskrá og hefur kjörskrá verið yfirfarin af trúnaðarmönnum í öllum verksmiðjum.
Starfsfólk í verksmiðjum Brim á Vopnafirði, Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og Neskaupstað, Eskju á Eskifirði, Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og Skinneyjar Þinganess á Höfn, greiða atkvæði um þennan samning.
Á kosningasíðunni sem allir á kjörskrá fá aðgang að - er kynningarefni um samninginn og farið er yfir helstu atriði hans.
Ath. - þegar félagsmaður hefur kosið - lokast kosningavefurinn fyrir viðkomandi og ekki er unnt að breyta atkvæði sínu. Félagið hvetur alla sem á kjörskrá eru - til að nota atkvæði sitt. Hvort heldur samningurinn er samþykktur eða felldur - skiptir máli varðandi samstöðu innan félagsins að úrslit kosninganna séu fengin með góðri þátttöku.