Fullbókað í orlofsíbúðir og hús AFLs
Síðustu vikurnar hefur verið fullbókað í allar íbúðir AFLs og orlofshús. Eitthvað hefur verið um afbókanir síðustu daga vegna aukningar í Covid smitum - en starfsmenn félagsins hafa þá leitað í biðlista og eignir hafa þá leigst út samstundis.
Sumarið hefur gengið vonum framar og félagsmenn hafa almennt verið ánægðir með orlofskostina sem í boði eru. Metaðsókn var að sumarhúsum AFLs og bárust rúmlega 900 umsóknir um tæplega 300 orlofsvikur á 9 orlofssvæðum. Eru þá íbúðir félagsins á Akueyri og í Reykjavík ekki taldar með.