Bæjarstjórn Hornafjarðar gefur lífskjarasamingnum langt nef
Þar sem sveitarstjórnir lýstu yfir vilja til að halda aftur af verðhækkunum í gjaldskrám til stuðnings lífskjarasamningum þá er ástæða til þess að vera á vaktinni gagnvart hækkunum á gjaldskrám þeirra. Sú yfirlýsing náði til 2020 en hugsunin ætti að gilda áfram þannig að sveitarfélögin stuðli að stöðugu verðlagi.
AFL hefur kannað lauslega hækkanir á gjaldskrám þriggja stærstu sveitarfélaganna á félagssvæðinu
Hjá Múlaþingi-hækka helstu gjaldskrár um 3 -3,5%
Álagningarprósentur fasteignaskatt og lóðaleigu, eru óbreyttar milli ára en meðaltalshækkun á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu var 3,5% þó mismunandi milli byggðakjarna
Stjórn hitaveitunnar hefur boðað álagningarprósenta fráveitugjalda hækki úr 0,32 í 0,35 af fasteignamati eða um 9,38%.
Hjá Fjarðabyggð- er almenn gjaldskráhækkun 2,4%
Álagningarhlutfall fasteignaskatts var lækkað um 4% og vatnsgjald um 10% en fasteignamat innan sveitarfélagsins hækkaði að meðaltali um 6,2%, mismunandi þó á milli byggðakjarna.
Orkugjald Hitaveitunnar á Eskifirði var lækkað um 5%
Skólamáltíðir í leik og grunnskólum eru gjaldfrjálsar og hafa verið frá því í haust.
Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði – hækka leikskólagjöld, gjöld fyrir lengda viðveru, og skólamatur um 9%
Hækkanir á umhverfissviði er gríðarlegar og því borið við að gjaldskráin hafi verið óbreytt frá 2014 en hækkun fráveita er um 11,67%, tengigjöld fráveitu að 150mm um 12,5% en um 8,57 fyrir tengigjöld fráveitu að 150mm.
Vatnsveita hækkar um 3,33% en tengigjöld að 40 mm hækka um 114,29% en tengigjöld yfir 40 mm um 64%.
Loks hækkar gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar um 10%
Fasteignaprósentan verður óbreytt milli 2021og 2022
Í þessari stuttu samantekt er ljóst að sveitarstjórn Múlaþings og bæjarstjórn Fjarðabyggðar halda aftur af sér í hækkun þjónustugjalda þótt að stjórn HEF telji sig óbundna af lífskjarasamningum.
Bæjarstjórn Hornafjarðar á hinn bóginn, gefur lífskjarasamningum langt nef í ákvörðunum sínum um gjaldskrárhækkanir vegna 2022.