Laus tímabil í orlofshúsum komin á vefinn
Þau tímabil í orlofshúsum AFLs í sumar sem ekki fóru í úthlutun félagsins eru nú laus til bókunar á orlofsvef félagsins. Það eru allnokkur tímabil laus og þá aðallega fyrripart júní og seinnipart ágústmánaðar.
Það er ennþá talsvert laust á Einarsstöðum. Á Illugastöðum er aðeins laus ein vika snemma í júní og ein síðast í ágúst. Í Ölfusborgum er aðeins síðasta vikan í ágúst laus. Í Minniborgum eru lausar vikur í ágúst og svo ein í júní. Í Brekkuskógi er ekkert laust. Í Svignaskarði er fyrsta vikan í júní laus. Í Birkihlíð er síðasta vika sumarsins laus. Á Glaðheimum er ein vika um miðjan júní laus og svo tvær síðustu vikur sumarsins. Í þurranesi eru tvær vikur lausar í júní og svo síðasta vika sumarsins. Það er talsvert laust í Klifabotni í Lóni og þá aðallega seinnipart sumars en ein vika í júní.
Ef byggja má á reynslu fyrri ára þá verður nánast 100% nýting á húsum félagsins í sumar og því rétt að félagsmenn bóki sem fyrst. Bókað er á orlofsvef félagsins á "mínum síðum" á www.asa.is