Verðhækkun á flugi með Erni frá Höfn
Verð á flugávísunum með Flugfélaginu Erni sem AFL selur hækkar í dag í kr. 16.400. Þetta er veruleg hækkun en að sögn flugfélagsins er hækkunin vegna verulegra hækkana á eldsneyti. Verð á þessum flugávísunum hefur verið kr. 13.500 í nokkuð langan tíma og hefur félaginu tekist að halda verðinu niðri með því að kaupa mikið magn í hvert sinn.