Hvernig breytist veikindaréttur sjómanna?
Á vegum Sjómannasambands Íslands er verið að vinna skýrari kynningarglærur á veikindarétti og ennfremur kynningarglærur um viðbótarlífeyrisframlag sjómanna. Það er mikilvægt fyrir sjómenn að kynna sér vel lífeyrismálin áður en þeir taka ákvörðun um hvort viðbótin fer í samtryggingadeild eða tilgreinda séreign. Báðar leiðir hafa kosti og ókosti.
1. Samtryggingadeild - verulega aukin lífeyrisréttindi við starfslok. Allt að 30% meiri tryggingavernd við örorku. Hentar best fyrir yngri sjómenn með fjölskyldu á framfæri og fasteignaskuldbindingar. Erfist ekki.
2. Tilgreind séreign. Greidd út í einu lagi eða fáum árum við starfslok. Erfist. Hefur ekki áhrif á langtímalífeyrisgreiðslur og veitir ekki aukna vernd gagnvart örorku. Hentar best fyrir sjómenn sem komnir eru yfir miðjan aldur og eru farnir að horfa fram á starfslok.