ALCOA dregur enn úr framleiðslu
![Alcoa Alcoa](/images/stories/FrettatengdarMyndir2007/thumbnails/thumb_alcoa.jpg)
Í tilkynningu ALCOA segir að með því að draga úr framleiðslu margra verksmiðja í stað þess að loka verksmiðju megi komast hjá kostnaðarsömum aðgerðum við að hætta framleiðslu og setja í gang aftur síðar. Þá verði líka komist hjá alvarlegum afleiðingum fyrir nærsamfélög starfandi verksmiðja
Skýringar á samdrættinum er lágt verð á áli og veikt efnahagsástand um heim allan.
Ekki hafa borist fréttir af samdrætti í framleiðslu ALCOA á Reyðarfirði.