Sjómenn í gjallbing
![formannafundur_ss2 formannafundur_ss2](/images/stories/FrettatengdarMyndir2009/thumbnails/thumbnails/thumb_formannafundur_ss2.jpg)
Helstu mál fundarins voru kvótakerfi og stefnumörkun Sjómannasambandsins vegna umræðu um fiskveiðistjórnun og þátttaka lífeyrissjóða í fjárfestingarsjóði atvinnulífsins.
Vestmannaeyingar eru höfðingjar heim að sækja og farið var með fundargesti í kynnisferð um bæinn og m.a. á gosslóðir þar sem unnið hefur verið að því að grafa hús undan ösku - hús sem hurfu sjónum manna í janúar 1973.
Á fundinum var meðfylgjandi skjal lagt fram í stefnumótunarvinnu um fiskveiðistjórnunarkerfi.