Ódýrt flug fyrir félagsmenn AFLs
Með samningi þessum vilja Flugfélagið Ernir og AFL Starfsgreinafélag vekja athygli almennings á flugsamgöngum til og frá Höfn í Hornafirði og hversu nauðsynlegar flugsamgöngur eru fyrir samfélagið í heild.
Miðarnir verða komnir til afgreiðslu á skrifstofu félagsins á Höfn eftir hádegi á mánudag og til afgreiðslu á Djúpavogi síðar í vikunni. Til að byrja með verða miðarnir aðeins til afgreiðslu á þessum skrifstofum AFLs en hægt verður að fá þá afhenta á öðrum skrifstofum með því að panta þá með nokkurra daga fyrirvara.
Athygli er vakin á því að sýna þarf félagsskírteini AFLs við innritun í flug og að á skrifstofum félagsins verða miðarnir aðeins seldir fullgildum félagsmönnum og miðarnir eru gefnir út á nafn félagsmanns. Félagsmenn geta ekki keypt miða til notkunar fyrir aðra.