Öryggisverðir og skúringar
Þrátt fyrir að þjónusta sé aukin - verður leiguverð áfram óbreytt eða kr. 7.000 fyrir fyrstu nótt og kr. 3.000 fyrir hverja nótt eftir það. Félagið minni líka á að á skrifstofum þess geta félagsmenn fengið gistiávísanir hjá Foss hótelum á kr. 8.000 pr. nótt fyrir tvo með morgunverð.
Gestir í íbúðum AFLs við Mánatún í Reykjavík verða og varir við aðrar breytingar frá áramótum - en bandaríski sendiherrann á Íslandi mun flytja í "penthouse" íbúðina í Mánatúni 5 fljótlega í janúar. Þegar sendiráðið keypti íbúðina var samið við húsfélagið um ákveðna fyrirgreiðslu og aðstöðu vegna öryggisvörslu í húsinu. Sendiráðið greiðir umtalsverða upphæð í hússjóð vegna fyrirkomulagsins og þeirra óþæginda sem aðrir íbúar hússins kunna að verða fyrir. Komið hefur verið upp öryggismyndavélum í anddyrum og í bílageymslu og húsfélagið hefur gefið leyfi fyrir því að öryggisverðir verði með aðsetur í anddyri Mánatúns 5. Bílastæði sendiherrans eru sérstaklega vöktuð.
Félagsmenn eru beðnir að sýna þessum öryggiskröfum skilning og umburðarlyndi.