AFL Starfsgreinafélag hvetur félagsmenn sína er starfa á leikskólum til að virða verkfall Félags Leikskólakennara í hvívetna. Þannig beinir félagið tilmælum til félagsmanna að ganga ekki í störf leikskólakennara og kynna sér leiðbeiningar sem birtar eru hér að aftan.
AFL lýsir fyllsta stuðningi við leikskólakennara í kjarabaráttu sinni.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag hefur Stapi Lífeyrissjóður endurheimt kröfu sína á Straum Burðarás (nú ALMC hf) að verðmæti um 5,2 milljarða króna, sem um tíma var talin glötuð með því að lögmaður lífeyrissjóðsins lýsti kröfunni of seint í þrotabú bankans.
Nú stendur yfir póstatkvæðagreiðsla um nýgerðan karasamning milli Starfsgreinasambands íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, vegna félagsmanna AFLs sem starfa hjá sveitarfélögum á Austurlandi. Talning atkvæða fer fram 18. júlí. Hvetjum félagsmenn til að sína samstöðu og greiða atkvæði um kjarasamninginn, atkvæðaseðlar þurfa að berast félaginu fyrir lokun skrifstofa föstudaginn 15. júlí.
Um tíuleytið í morgun var skrifað undir nýjan kjarasamning milli SGS og sveitarfélaganna. Fundur hafði þá staðið samfellt í rúman sólarhring. Samningurinn er í takt við þá samninga sem gerðir hefur verið á undanförnum vikum. Samningurinn fer í kynningu í næstu viku.
Talningu atkvæða í kosningum um nýgerðan kjarasamning AFLs Starfsgreinafélags og Starfsgreinasambands Íslands við Sambands íslenskra sveitarfélaganna er lokið. Samningurinn var samþykktur með 87,1 % greiddra atkvæða. Niðursstöður fara hér á eftir.