Nú er kominn tími á desember- uppbótina
Greiða á desemberuppbót ýmist með nóvemberlaunum eða í síðasta lagi fyrir 15. desember. Upphæðir desemberuppbótar miðast við að starfsmenn hafi unnið 45 vikur í fullu starfi eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Yfirleitt þarf starfstími hjá sama launagreiðanda að vera 12 vikur eða meira til að réttur til desemberuppbótar myndist.
Starfsmenn í hlutastörfum fá greitt hlutfallslega uppbót og eins þeir sem unnið hafa hluta úr ári. Það geta verið aðeins mismunandi ákvæði í kjarasamningum og er fólki bent á að kynna sér sinn samning.
Vert er að vekja athygli námsmanna og annarra er störfuðu yfir sumarmánuðina á því að hafi starfstíminn verið 12 vikur eða meira á viðkomandi rétt á hlutfallslegri desemberuppbót.