AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Ársfundur Stapa 8. maí

Stapi LífeyrissjóðurÁrsfundur lífeyrissjóðsins Stapa verður haldinn 8. maí nk. í Hótel Reynihlíð við Mývatn, fundurinn hefst klukkan 14:00 og er opinn öllum sjóðsfélögum með málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Baráttukveðjur á 1. maí

Stjórn, starfsfólk og trúnaðarmenn AFLs Starfsgreinafélags senda félagsmönnum og launafólki öllu baráttukveðjur í tilefni 1. maí. "Verndum kjörin" er yfirskrift dagsins og ekki að ósekju en verðhækkanir rýra nú kjör þau sem nýgerðir kjarasamningar áttu að tryggja.

AFL efnir til hátíðahalda í tilefni dagsins á 10 þéttbýlisstöðum - sjá lesa meira hér að neðan.

Czytaj dalej

Síðustu dagar umsókna um orlofshús

Orlofskostir, skoða nánarNú streyma inn umsóknir um orlofshús, umsóknarfrestur er til 29. apríl, úthlutun fer fram í kjölfarið. Þeir sem hafa hug á að sækja um geta gert það á viðeigandi umsóknareyðublaði eða í síma 4700300. Rétt er að taka það fram að lokið hefur verið við úthlutun íbúðarinnar á Spáni.

Aðalfundur iðnaðarmannadeildar ? leiðrétting

Þau leiðu mistök urðu við vinnslu auglýsingar um aðalfund iðnaðarmannadeildar AFLs í Dagskránni, að fundurinn var sagður vera 18. apríl. Hið rétta er, að fundurinn verður haldinn 28. apríl, í húsi félagsins að Egilsbraut 11, Neskaupsstað, Fjarðabyggð. Fundurinn hefst kl. 20:00.
Nánar auglýst síðar.

Góður árangur í innheimtumálum

Í gær féll dómur í Héraðsdómi Austurlands í máli er lögmenn AFLs Starfsgreinafélags höfðuðu fyrir hönd erlends félagsmanns. Með dómnum voru allar kröfur félagsins viðurkenndar og viðkomandi fyrirtæki dæmt til að greiða um 600.000 krónur auk álíka upphæðar í málskostnað.

Czytaj dalej

Aðalfundur:

Verkamannadeildar verður haldinn að Egilsbraut 11, Neskaupstað, 21. apríl kl. 20:00.
Verslunarmannadeildar verður haldinn að Víkurbraut 4, Höfn, 22. apríl kl. 20:00.
Iðnaðarmannadeildar verður haldinn að Egilsbraut 11, Neskaupstað, 28. apríl kl. 20:00.

Czytaj dalej

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi