AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Aðalfundar AFLs 2016

Boðað er til aðalfundar AFLs Starfsgreinafélags 2016 laugardaginn  7. maí  klukkan  15:00 á Hótel Framtíð Djúpavogi
Dagskrá:
1) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
2) Reikningar félagsins kynntir bornir upp til samþykktar
3) Kjör stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs
4) Kjör félagslegra skoðunarmanna
5) Kjör til annarra stjórna og ráða félagsins sbr. lög þess
6) Ákvörðun félagsgjalds
7) Kjör fulltrúaráðs Stapa.
8) Önnur mál
Ferðir verða skipulagðar af skrifstofum félagsins – hafið samband við næstu skrifstofu. Ársreikningar félagsins liggja fyrir á skrifstofum félagsins viku fyrir aðalfund
AFL Starfsgreinafélag

Trúnaðarmanna- námskeið í Staðaborg

Þá er enn einu frábæru trúnaðarmannanámskeiði lokið. Að þessu sinni sóttu 17 trúnaðarmenn víðsvegar af félagssvæðinu námskeiðið, sem þótti takast með miklum ágætum. Fyrri daginn hafði Guðmundur Hilmarsson Starfsmaður ASÍ völdin og var farið yfir lestur launaseðla og ýmsar reiknikúnstir þar að lútandi. Vakti það upp gamla góða takta við prósentu og tuga brota reikning viðstaddra. Seinni daginn hafði formaður félagsins Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir völdin og fór hún yfir starfsemi félagsins, kjarasamninga og sjóði.

Sem sagt, frábærir dagar að baki og óhætt að segja að þessi kjarni félagsins, trúnaðarmennirnir, hafi verið ótrúlega virkir og áhugasamir. sjá myndir

Aðalfundur verslunarmanna- deildar AFLs 2016

Aðalfundur verslunarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn í húsnæði félagsins að Víkurbraut 4 Hornafirði fimmtudaginn 14.  apríl 2016 kl 20:00.

Fundarefni:
1.  Skýrsla formanns deildarinnar
2.  Kjaramál
3.  Stjórnarkjör
4.  Önnur mál.

AFL Starfsgreinafélag verslunarmannadeild

Iðnaðarmanna- deild

Boðað er til aðalfundar Iðnaðarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags  1. apríl 2016 - kl. 17:00 á Reyðarfirði.

Dagskrá:
1. Skýrsla formanns -
2. Kjör stjórnar

Aðalfundur verkamanna- deildar AFLs 2016

Aðalfundur verkamannadeildar AFLs  Starfsgreinafélags verður haldinn í húsnæði félagsins að Búðareyri 1  Reyðarfirði  þriðjudaginn 12. apríl  2016 kl .17:00

Fundarefni:
1.  Skýrsla formanns um liðið starfsár
2.  Kjaramál
3.  Kosning stjórnar.
4.  Önnur mál.

AFL Starfsgreinafélag verkamannadeild

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi