AFL starfsgreinafélag

Félagsdótmur, uppsögn Smiðir ehf

Uppsögn stefnda á Guðmundi Óskari Sigjónssyni, trúnaðarmanni AFLs Starfsgreinafélags, þann 24. febrúar 2009, var brot á 11. gr. laga nr. 80/1938 og því ólögmæt.
Stefndi, Smiðir ehf., greiði stefnanda, Alþýðusambandi Íslands fyrir hönd. Starfsgreinasambands Íslands vegna AFLS starfsgreinafélags vegna Guðmundar Óskars Sigjónssonar, 716.904 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 24. febrúar 2009 til 22. júlí 2009, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags og 100.000 krónur í málskostnað. Sjá Dominn í heild hér

Dómur í máli AFLs gegn Álfasteini

Þann 23. april 2008 féll dómur í Héraðsdómi Austurlands í máli er lögmenn AFLs Starfsgreinafélags höfðuðu fyrir hönd erlends félagsmanns. Með dómnum voru allar kröfur félagsins viðurkenndar og viðkomandi fyrirtæki dæmt til að greiða um 600.000 krónur auk álíka upphæðar í málskostnað. Sjá dóminn. Málið fór í hæstarétt sjá dóminn í heid sinni hér

Dómur Álfasteinn

Dómkröfur stefnenda eru þær að hið stefnda einkahlutafélag verði dæmt til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 48.710 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III sjá dóminn

Brim dæmt til að greiða 3ja ára stéttarfélagsgjöld

Fyrirtækjum ber að draga stéttarfélagsgjald af launum starfsmanna og skila til þess stéttarfélags sem samningsaðild á um viðkomandi starf og félagssvæði. Þetta má lesa úr dómi er féll í héraðsdómi Reykjavíkru 29. janúar sl. Þetta gildir hvort heldur starfsmaðurinn er félagi verkalýðsfélagsins eða ekki því í kjarasamningi sem gerður hefur verið milli atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar er skýrt kveðið á um þessa skyldu. Því má bæta við að kjarasamningar verkalýðsfélaga eru í öllum tilfellum lágmarkskjarasamningar og tryggja öllum launþegur að lágmarki þau laun og önnur kjör er þar er um samið.

Samkvæmt dómnum sem kveðinn var upp í héraðsdómi Reykjavíkur var útgerðarfyrirtækið Brim dæmt til að greiða Félagi skiptstjórnarmanna ógreidd félagsgjöld vegna eins yfirmanna í 3 ár. Því geta kröfur sem þessar birst fyrirtækjum jafnvel fyrir mörg ár aftur í tímann og verður þeim þá ókleyft að innheimta af starfsmönnunum - enda innheimta og skil gjalda á ábyrgð fyrirtækjanna. Sjá dóminn