Iðnaðarmannadeild AFLs er með umboð sitt til samningagerðar með öðrum iðnaðarmannafélögum í Samiðn, sambandi iðnfélaga. Nú hefur Samið ásamt öðrum félögum iðnaðarmanna vísar kjaradeildu sinni til ríkissáttasemjara en kjarasamningar félaganna við Samtök atvinnulífsins runnu út 1. nóvember s.l.
Samninganefndir Starfsgreinasambandsins, Landssambands ísl. verslunarmanna og VR hafa ákveðið að vísa yfirstandandi kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara.
Þetta er gert þar sem lítill árangur hefur orðið af viðræðum undanfarinna vikna. Samningsaðilar voru að freista þess að gera skammtímasamning til ca 15 mánaða en þegar kom að því að ræða launaliðinn er bil milli aðila allt of breytt. Með vísuninni fer verkstjórnin á viðræðunum yfir til ríkissáttasemjara.
Kjarasamningar AFLs Starfsgreinafélags við Samtök atvinnulífsins runnu út á miðnætti- þeir gilda þó áfram þar til gerður hefur verið nýr kjarasamningur hefur verið undirritaður og hlotið samþykki félagsmanna.
Eins fram hefur komið ákváðu Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) og Starfsgreinsamband Íslands (SGS), að taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning en AFL er með aðild að báðum þessum samtökum. Auk þess er iðnaðarannadeild félagsins með aðild að Samiðn, en iðnaðarmenn eru ekki með í þessu samfloti.
Sett hefur verið niður þétt fundarplan næstu 3 vikurnar og þess vænst að þær viðræður skili félögunum nær samningsniðurstöðu. sjá frekar
Starfsdagur félagsmanna AFLs sem starfa í grunnskólum aftur á dagskrá.
Síðast héldum við þennan dag 2019 en síðan skall Covid á með tilheyrandi takmörkunum. Við vitum hins vegar að félagar okkar í grunnskólunum hafa beðið eftir því að geta hist aftur.
Dagskráin liggur fyrir og við hvetjum félagsmenn okkar sem starfa í grunnskólunum til að mæta og taka þátt. Dagurinn verður haldinn á Hótel Héraði að þessu sinni og umgjörðin vonandi upp á sitt besta.
Við bjóðum líka velkomna félagsmenn okkar sem starfa á leikskólum á félagssvæðinu ef þeir eiga heimagengt.
Föstudaginn 16. september 2022 Hótel Héraði Egilsstöðum
Kl. 10:00 - Komið í hús. Kaffiveitingar Kl. 10:10 - Setning – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs Kl. 10:15 - Veldu að vaxa – Unnur Arna Jónsdóttir Kl. 11:00 - Hlé Kl. 11:10 - Veldu að vaxa – Unnur Arna Jónsdóttir Kl. 12:15 - Hádegisverður Kl. 13:00 - Vinnuhópar Kl. 13:45 - Niðurstaða úr vinnuhópum. Kl. 14:00 - Kjaramál- Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir Kl. 14:10 - Félagakerfi AFLs- Sverrir Mar Albertsson Kl. 14:30 - Svefn, streita og andleg ígrundun. - Petra Lind Sigurðardóttir Kl. 15:00 - Kaffihlé Kl. 15:30 - Svefn, streita og andleg ígrundun, Petra Lind framhald Kl. 16:45 - Vinnuhópar Kl. 17:15 - Niðurstaða úr vinnuhópum Kl. 17:30 - Kvöldverður
Skráning á næstu skrifstofu AFLs eða á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
Þeir félagsmenn sem vilja að AFL skipuleggi ferðir hafið samband við næstu skrifstofu.
Búið er að opna fyrir umsóknir um jól og áramót. Sótt er um á "mínum síðum" á www.asa.is og er íbúðum úthlutað nánast jafnóðum og umsóknir koma inn. Úthlutað er í þeirri röð sem umsóknir koma og gildir því "fyrstu kemur fyrstur fær". Þessi háttur er hafður á þar sem við hefðbundna úthlutun sóttu jafnan miklu fleiri um íbúðir en síðan staðfestu úthlutun - þar sem margir úr sömu fjölskyldu sóttu jafnan um. Það varð síðan til þess að margir þeirra sem ekki fengu úthlutað í fyrstu umferð gerðu aðrar ráðstafanir eða hættu við áformaða ferð - en á síðustu dögum bárust síðan afbókanir.
Í fyrra var þetta verklag viðhaft og náðist að mæta óskum langflestra þeirra sem óskuðu eftir orlofsdvöl um jól eða áramót. Sama fyrirkomulag er bæði á íbúðum og orlofshúsum.
Þeir sem fá úthlutað íbúð skv. þessu verða síðan að greiða staðfestingargjald sem er kr. 5.000 og er óendurkræft og er ekki endurgreitt þó að bókun sé felld niður án tillits til forsenda niðurfellingar.