Launafl, VHE, Fjarðaþrif, Lostæti, Sjónarás, Eimskip. Kjörsókn var frá 23% til 80%. Já voru frá 68% - 100%. Starfsmenn Brammer og Securitas felldu sína samninga með verulegum mun - 60% og 70%.
Verkfalli verslunarmanna í AFLi sem hefjast átti á fimmtudag hefur verið frestað um 5 sólarhringa. Þetta var tilkynnt af samninganefnd Landsambands Íslenskra Verslunarmanna í gær í kjölfar óformlegra funda sem samninganefnd sambandsins átti um helgina með SA.
Verkfalli Starfsgreinasambandsins utan höfuðborgarsvæðis hefur ekki verið frestað þannig að allt stefnir í að verkafólk í AFLi fari í verkfall eins og boðað hefur verið á fimmtudag og föstudag. 6. júní hefst síðan ótímabundið verkfall verkafólks um land allt utan höfuðborgarsvæðis - hafi ekki samist fyrir þann tíma.
Eftirtalin félög og sambönd: VM- Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Samiðn, MATVÍS, Rafiðnaðarsamband Íslands, Grafía –(FBM) stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum og Félag hársnyrtisveina hafa ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun sem yrði með eftirfarandi hætti:
Tímabundið verkfall dagana 10. t.o.m 16. júní 2015 og ótímabundið verkfall sem hefst þann 24. ágúst 2015.
Verði verkföllin samþykkt munu þau taka til þeirra félagsmanna sem falla undir almennan kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og viðkomandi stéttarfélaga og sambanda. Þar með talið iðnaðarmenn í AFLi Starfsgreinafélagi utan þeirra sem starfa hjá ALCOA Fjarðaál eða falla undir nýgerða samninga um kjör hjá undirverktökum ALCOA.
Kosning um verkfallsheimild verður rafræn og mun hefjast þann 24. maí 2015 og ljúka þann 1. Júní 2015, kl 10.00
Fulltrúar iðnaðarmanna hafa átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga. Á fundi viðræðunefndar félaganna með fulltrúum SA þann 5. maí s.l. var sýnt að viðræðurnar væru árangurslausar og það hefði ekki tilgang að halda þeim áfram.
Í þeim viðræðum sem staðið hafa yfir hafa iðnaðarmannafélögin lagt áherslu á að minnka vægi yfirvinnu í heildarlaunum með því að hækka dagvinnulaun svo þau dugi til framfærslu. Mikil þörf er fyrir nýliðun í greinunum en núverandi launakerfi hafa skapað starfsumhverfi sem höfðar síður til ungs fólks.
Kynningum á samningum AFLs við 8 undirverktaka á álverslóð er lokið. Flestir sem samningarnir taka til hafa haft tækifæri til að greiða atkvæði um þá á kynningarfundum en kjörfundur verður opinn á morgun, þriðjudaginn 25.maí að Búðareyri 1, Reyðarfirði. Kjörfundi lýkur kl. 16:00 og verða atkvæði talin kl. 17:00.
Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu verkfalli 10.000 félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands dagana 19. og 20. maí. Að auki hefur ótímabundnu verkfalli sem átti að hefjast 26. maí verið frestað. Það er mat samninganefndar SGS að gefinn skuli tími til úrslitatilrauna í samningaviðræðum á þessu stigi málsins.
Með þessu axlar SGS ábyrgð á erfiðum kjaradeilum og gefur Samtökum atvinnulífsins tækifæri til að koma með tillögur sem hönd er á festandi áður en landið lamast í verkföllum og hér skellur á neyðarástand á vinnumarkaði.
Frestun verkfalla á þessu stigi málsins er framlag Starfsgreinasambandsins til skynsamlegra lausna á kjaradeilunni. Ljóst er að það verður að leysa málið og semja hvort sem það verður gert með verkfallsafli með ófyrirsjáanlegum afleiðingum eða með skynsemina að vopni. Boltinn er hjá Samtökum atvinnulífsins að nálgast skynsamar og ábyrgar kröfur Starfsgreinasambandsins.
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins hefur því ákveðið eftirfarandi:
Verkföll sem áttu að koma til framkvæmdar 19. og 20. maí er frestað til 28. og 29. maí.
Ótímabundnu verkfalli sem átti að koma til framkvæmda 26. maí er frestað til 6. júní.
„Eftir tvær vikur hefjast verkföll af stærðargráðu sem við höfum ekki séð áður ef ekki tekst að semja. Þau munu hafa veruleg og víðtæk áhrif og það er mikið til vinnandi að afstýra slíku. Framlag Starfsgreinasambandsins í þessu samhengi er að gefa andrými næstu tvær vikurnar til að semja svo ekki þurfi að koma til þessara hörðu aðgerða.“ Segir Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins.