AFL starfsgreinafélag

Verkfall samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. 70% kjörsókn

Talið hefur verið út atkvæðagreiðslu sem staðið hefur yfir meðal sjómanna í Sjómannadeild AFLs Starfsgreinafélags um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðsla fór fram meðal allra aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands og hjá félagi vélstjórnarmanna um verkfall þann 10. nóvember n.k. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var góð og niðurstaðan afgerandi en hún er eftirfarandi: Ekki liggja fyrir úrslit atkvæðagreiðslna annarra félaga þegar þetta er ritað.

Á kjörskrá             154
Atkvæði greiddu    108    70,13%
Já sögðu                  91    84,26%
Nei sögðu                16    14,81%
Ógildir                        1     0,93%
Verkfallið er ótímabundin og hefst þann 10. nóvember n.k. hafi ekki samist fyrir þann tíma

Starfsdagur grunnskóla- starfsmanna 2016

Starfsd2016

Starfsdagur grunnskólastarfsmanna stendur nú yfir á Reyðarfirði, en það sækja félagsmenn sem starfa í grunnskólum á félagssvæðinu
Að þessu sinni beinum við sjónum okkar inn á við, skoðum málefni okkar sjálfra og styrkingu okkar, bæði sem starfsmanns og ekki síður sem sterkari einstaklings.
Þetta er í tíunda sinn sem starfsdagurinn er haldinn og að þessu sinni eru þátttakendur 47

Samkeppni um nafn á nýju íbúðaleigufélagi ASÍ og BSRB

Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað íbúðafélag sem starfar í nýju íbúðarkerfi sem nú er verið að taka upp hér á landi.  Íbúðakerfið byggir á danskri fyrirmynd og verður hagstæður og öruggur valkostur fyrir fólk á leigumarkaði.

Íbúðafélagið er sjálfseignastofnun sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Skilyrði er að íbúðirnar verði leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur.

Íbúðafélagið hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reykjavík og Hafnarfjarðabær um lóðir fyrir 1150 íbúðir á næstu 4 árum og mun undirbúningur framkvæmda vegna 180 íbúða hefjast á þessu ári. Samhliða þessum fyrstu skrefum vinnur íbúðafélagið að lausn fyrir sveitafélög á landsbyggðinni.

Óskað er eftir tillögum um nafn á félagið og er því blásið til nafna samkeppni. Nafnið skal vera þjált í notkun og gefa félaginu jákvæða ímynd.

Tillögum um nöfn má skila inn fyrir 16. október á netfangið Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. eða Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.

Verðlaun kr. 50.000 verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.

Jól og áramót umsóknafrestur

Við viljum vekja athygli á að umsóknafrestur vegna íbúða um jól og áramót er til 9. nóvember. Umsóknareyðublað

Úthlutun fer fram 10. nóvember og allir sem sótt hafa um fá svar fljótlega upp úr því, hvort sem þeir hafa fengið úthlutað eða ekki.

Landsvirkjun samþykkir keðjuábyrgð

KedjuAbyrgð

Því ber að fagna að Landsvirkjun hefur samþykkt reglur um keðjuábyrgð, en reglunum er ætlað að tryggja að allir sem vinni fyrir Landsvirkjun á óbeinan hátt, hjá verktökum, undirverktökum eða starfsmannaleigum, njóti réttinda og kjara í samræmi við lög og kjarasamninga. Verkalýðshreyfingin hefur kallað eftir þessum reglum í langan tíma og Starfsgreinasambandið hvetur önnur opinber fyrirtæki og stofnanir til að setja sér slíkar reglur líka.

Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að:

„Stjórn Landsvirkjunar samþykkti reglurnar á fundi sínum í lok ágúst. Ákvæði um ábyrgð verður héðan í frá sett inn í alla innlenda samninga Landsvirkjunar um innkaup, þ.e. verksamninga, vörusamninga og samninga um kaup á þjónustu. Samkvæmt ákvæðinu, sem sett verður inn í samninga Landsvirkjunar, skal verktaki tryggja og bera ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við samninginn, gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni.

Að auki ber verktaki ábyrgð á og skal hafa í gildi og viðhalda tryggingum fyrir tjóni vegna slysa, veikinda, sjúkdóma, sjúkrakostnaðar eða dauða sem starfsmenn verktaka verða fyrir og rekja má til framkvæmda. Verktaki ber ábyrgð á að undirverktakar og starfsmannaleigur og starfsmenn þeirra hafi samskonar tryggingar.

Hingað til hafa samningar fyrirtækisins kveðið á um að mótaðilar – verktakar, undirverktakar og starfsmannaleigur – fari í öllu eftir lögum og samningum sem gilda á vinnumarkaði, en með nýja ákvæðinu er ábyrgðin nánar skilgreind, auk þess sem  Landsvirkjun fær úrræði til að framfylgja því að reglunum sé fylgt, þar sem það kveður á um viðurlög, brjóti mótaðili gegn ákvæðinu eða veiti ekki umbeðnar upplýsingar.“  (Fréttin er af vef Starfsgreinasambands Íslands)

Atkvæðagreiðsla að hefjast um verkfallsboðun sjómanna.

Trúnaðarráð AFLs hefur samþykkt að láta fara fram atkvæðagreiðslu meðal sjómanna í félaginu sem starfa á stærri skipum um boðum verkfalls.
Slitnað hefur upp úr viðræðum milli sjómanna og útgerðarmanna. Samninganefnd sjómanna beindi því til félaganna að hefja undirbúning að aðgerðum, en áður höfðu sjómenn fellt kjarasamning sem gerður var fyrr í sumar. Felling hans voru skýr skilaboð til samninganefndarinnar að sjómenn væru reiðubúnir í aðgerðir til að ná fram ásættanlegum kjarasamningi. Kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir í tæp 6 ár.

AFL tekur þátt í Stefnumóti

Stefnumot

AFL er með kynningarbás og mun kynna starfsemi félagsins, á Stefnumóti geta íbúar kynnt sér starfsemi hinna ýmsu fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu Hornafirði, sjá nánar hér