Efling-stéttarfélag efnir til næsta fundar í fundaröð sinni í Gerðubergi, laugardaginn 15. september kl. 14.30.
Frambjóðendur til embættis forseta ASÍ mætast og kynna stefnumál sín. Drífa Snædal og Sverrir Mar Albertsson hafa staðfest þátttöku.
Fundarstjóri er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.
Komandi kjarasamningar, launamál, húsnæðismál og aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru meðal mála sem brenna á Eflingarfólki. Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að senda inn spurningar til frambjóðenda um þau mál sem brenna á þeim um leið og þeir skrá sig á fundinn. Spurningarnar verða teknar saman og bornar upp á fundinum.
Streymt verður af fundinum og hann tekinn upp, til að gera þeim kleift að fylgjast með sem ekki eiga heimangengt. Enskri þýðingu á efni fundarins verður varpað á skjá jafnóðum. Hlekkurinn kemur inn á Facebook síðu Eflingar um leið og útsending hefst
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en fólk er hvatt til að skrá sig á fundinn á www.efling.is
Ungur maður sem sótti um vinnu hjá taldstæði í nágrenni Reykjavíkur fékk svar frá fyrirtækinu þess eðlis að fyrirtækið greiddi ekki laun - en væri einungis með sjálfboðaliða í vinnu sem fengju fæði og húsnæði fyrir ca. 5 tíma vinnu á dag.
Hér er augljóslega verið að brjóta alla kjarasamninga - enda á annað hundrað ár síðan fólk hætti að vera matvinnungar og lítið meira. AFL hefur sent Eflingu í Reykjavík upplýsingar um þetta mál og ennfremur mun félagið senda embætti Ríkisskattstjóra upplýsingar enda líklegt að þessi vinna og endurgjald fyrir hana fari allt fram frekar óformlega. Þetta er enn eitt dæmi um hemjulitla græðgi í atvinnulífinu þar sem hraunað er yfir kjarasamninga og lögbundna skatta og skyldur.
AFL Starfsgreinafélag hefur síðustu mánuði eytt talsverðu púðri í að fjalla um sjálfboðaliða á vinnumarkaði m.a. með auglýsingum sem einungis birtast á erlendum vefmiðlum og er beint að ungu fólki. Við höfum í kjölfarið fengið hundruði erinda og fyrirspurna - og einni ábendingar og er þetta sú síðasta.
Það hefur verið sýnt fram á, að því ánægðara sem fólk er í vinnunni, því sjaldnar er það fjarverandi vegna veikinda. Þetta kom m.a. fram í síðustu launa- og viðhorfskönnun AFLs. Í sömu könnun kom jafnframt fram, að svarendur sem upplifðu lítið starfsöryggi voru meira frá vegna veikinda, en þeir sem upplifðu mikið starfsöryggi.
Um 43% svaranda kváðust hafa verið frá vinnu í einn dag eða meira vegna veikinda eða vinnuslyss sl. 3 mánuði. Þetta hlutfall hefur farið vaxandi undanfarin ár. Það að starfsánægja dragi úr líkum á veikindum kemur ekki á óvart. Sú niðurstaða, að að minna starfsöryggi dragi ekki úr fjarvistum vegna veikinda, kemur aftur á móti nokkuð á óvart. Það gæti skýrst af bættu atvinnuástandi. Þó er mikilvægt að draga ekki of ákveðnar ályktanir nema fylgjast með þróun yfir lengri tíma.
Golfmót Iðnfélaganna fer fram laugardaginn 1. september á Akureyri á Jaðarsvelli. Mæting kl. 12.00 í súpu og ræst verður út kl. 13.00. Skráning hjá Steindóri Ragnarssyni hjá GA Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript. og hægt að setja fram óskir um meðspilara hjá honum. Mótsgjald er 5.000 kr. og innifalið í því er teiggjöf, spil á vellinum, súpa í hádeginu kl. 12.00 og matur að loknu spili. VEGLEG VERÐLAUN VERÐA Í BOÐI! Veitt verða verðlaun fyrir: Höggleik án forgjafar, punktakerfi, nándarverðlaun, einnig verður dregið úr skorkortum. Það eiga því allir möguleika en fyrst og fremst verður þetta mikil skemmtun fyrir áhugamenn.
Föstudaginn 14. september 2018 Búðareyri 1, Reyðarfirði Kl. 10:00 – Komið í hús. Kaffiveitingar Kl. 10:15 – Setning – Hjördís Þóra, formaður AFLs Kl. 10:20 –Áherslur fyrir komandi kjarasamninga- Hjördís Þóra Kl. 10:40 – Örkynning á Alþýðusambandinu- Sverrir Mar Kl. 11:00 – Hlé Kl. 11:10 – Trú á eigin getu- Jóhann Ingi Gunnarsson Kl. 12:15 – Hádegisverður Kl. 13:00 – Krefjandi samskipti- Jóhann Ingi Gunnarsson Kl. 15:00 – Kaffihlé Kl. 15:30 – Umræður í hópum Kl. 16:30 – Virkni og líðan – Hólmgrímur og Hilmar Kl. 17:30 – Kvöldverður
Skráning á næstu skrifstofu eða á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
Þeir félagsmenn sem vilja að AFL skipuleggi ferðir hafið samband við næstu skrifstofu
Að gefnu tilfefni vill AFL Starfsgreinafélag hvetja félagsmenn til að halda vel utan um launaseðla sína og tímaskýrslur. Það getur ráðið úrslitum í málum þar sem félagið fer fram á að laun séu leiðrétt - að félagsmenn hafi haldið utan um gögn sín. Það er full ástæða til að hvetja fólk til að bera tímaskýrslur saman við launaseðla og síðan við ráðningarsamning.
Vert er að vekja athygli á:
1. Ef ráðningarsamningur er um 100% starf - á alltaf að greiða fullan mánuð nema starfsmaður hafi sjálfur beðið um frí. Ef unnar stundir eru færri en 100% vegna verkefnastöðu - er það á ábyrgð launagreiðanda en ekki starfsmanns.
2. Ef unnin er vaktavinna - er vinna á aukavöktum eða vinna fram fyrir áformuð vaktaslit yfirvinna. Það er óheimilt að greiða vaktaálög á breytilegar vinnustundir. Vaktaálög á aðeins að greiða á fyrirfram ákveðnar vaktir sem hafa fast upphaf og fastan endi. (ath. það geta verið minniháttar frávik frá þessari meginreglu)
3. Samanlagður tímafjöldi í dagvinnu og vinnu með vaktaálögum á ekki að vera umfram 173 tíma í mánuði. Alla tíma umfram 173 á að greiða sem yfirvinnu. (ath. það geta verið minniháttar frávik frá þessari meginreglu)
Ofangreint eru tvö helstu atriði sem félagsmenn okkar eru að glíma við þessa dagana og þá sérstaklega í ferðmannageiranum - þ.e. að fólk er sent launalaust heim vegna verkefnaskorts þó svo að ráðningarsamningar séu fyrir fullu starfi og einnig að vaktaálög eru notuð á alla vinnu umfram dagvinnu - og líka þegar greiða á yfirvinnu.
Félagið vill líka hvetja foreldra og forráðamenn unglinga sem eru að hefja þátttöku á vinnumarkaði til að fara yfir launaseðla barna sinna og útskýra. Ef einhver vafi er á að rétt sé greitt er viðkomandi bent á að hafa samband við skrifstofur félagsins eða senda póst á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.