Verður haldinn þriðjudaginn 21. mars kl. 17:00 að Búðareyri 1, Reyðarfirði.
Dagskrá
Kjaramál
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár
Kjör stjórnar deildarinnar
Önnur mál
Boðið verður upp á fjarfund fyrir þá sem þess óska, tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi fyrir kl.16:00 fundardag. Sendist á aTen adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
Talið hefur verið í kosningum um nýgerðan kjarasamning Sjómannasambands Íslands við útgerðarmenn. Félagsmenn Sjómannasambandsins felldu samninginn með 67,43% greiddra atkvæða. 31,52% greiddu atkvæði með samningnum en 1,05% sat hjá. Alls voru 1.200 sjómenn á kjörskrá og greiddu 571 atkvæði og kjörsókn því 47,58.
Sjómannafélag Grindavíkur og VM felldu einnig með svipuðum mun en Skipstjórafélagið samþykkti samninginn með 55% atkvæða.
Framkvæmdastjórn Sjómannasambandsins fundar fljótlega til að ákveða næstu skref - en fátt virðist í stöðunni annað en að hefja undirbúning verkfalla. Samningar runnu út 2019 og hafa sjómenn verið samningslausir síðan.
Í gær var undirritaður nýr vinnustaðasamningur milli AFLs/RSÍ við Alcoa. Samningurinn er til tveggja ára og gildir frá síðustu mánaðarmótum en eldri samningur rann út þá.
Samningurinn fer í kynningu og atkvæðagreiðslu á næstu dögum
Verður haldinn 7. mars 2023 kl. 18:00 að Víkurbraut 4 Hornafirði.
Dagskrá
Kjaramál
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár
Kjör stjórnar deildarinnar
Önnur mál
Boðið verður upp á fjarfund fyrir þá sem þess óska og þarf að senda beiðni um það í síðasta lagi kl 14:00 fundardag. Beiðnin óskast send á Ten adres pocztowy jest chroniony przed spamowaniem. Aby go zobaczyć, konieczne jest włączenie w przeglądarce obsługi JavaScript.
AFL Starfsgreinafélag, Efling Stéttarfélag, Aldan Stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands og Verkalýðsfélagið Hlíf hafa undirritað samkomulag um rekstur félagakerfisins Tótal. Fjögur síðarnefndu félögin hafa einnig keypt hluti í Félagakerfinu Tótal ehf., sem áður var að fullu í eigu AFLs Starfsgreinafélags.
Hlutafélagið verður rekið sem óhagnaðardrifið félag í framtíðinni – þ.e. að rekstrarkostnaði þess verður deilt niður á notendur félagakerfisins í hlutfalli við notkun hvers og eins.
Samstarfssamningur félaganna og kaup á hlutafé í kerfinu er niðurstaða viðræðna félaganna í á annað ár. Verkalýðsfélagið Hlíf hóf notkun á félagakerfinu Tótal fyrir um ári síðan en hin þrjú félögin hófu viðræður við AFL Starfsgreinafélag síðastliðið haust. Jafnframt samstarfssamningnum hafa félögin fimm gengið frá samstarfs-og rammasamningi við Advania um áskrift að bókhaldskerfi, hýsingu og aðra skylda þjónustu.
Í augnablikinu er verið að flytja gögn Öldunnar og StéttVest yfir í Tótal og innleiðing í kerfið hefst á næstu vikum. Verið er að vinna innleiðingaráætlun fyrir Eflingu og er stefnt að því að innleiðingu verði að fullu lokið í maí.
Nokkur önnur félög innan Alþýðusambands Íslands hafa óskað eftir kynningu á Tótal félagakerfi og eru kynningarfundir áformaðir á næstu vikum.
Uppruna Tótal félagakerfis má rekja til 2011 er AFL Starfsgreinafélag lét gera orlofskerfi fyrir sig en notaði að öðru leyti félagakerfið Bóta. 2016 tók AFL í notkun félagakerfishluta sem m.a. tekur á móti skilagreinum og heldur utan um styrki og sjúkradagpeninga.
Kerfið er í stöðugri þróun og inniheldur m.a. kosningakerfi, hópa-og skeytakerfi, vefverslun, aðgangsstýrikerfi fyrir orlofsíðbúðir auk orlofskerfis, iðgjaldakerfis og styrkja og dagpeningakerfis. Að auki er unnt að vinna fjölda skýrslna úr kerfinu. Tótal tengist Navision / BC bókahaldskerfi með veflausn og með þeirri samþættingu verður innheimta iðgjalda og afgreiðsla styrkja og dagpeninga sjálfvirk.
Kerfið er með „mínar síður“ sem nú þegar eru á sjö tungumálum og unnið að fjölgun þeirra. Mínar síður bjóða upp á fjölbreytta möguleika til gagnvirkni og að félagsmenn geti sinnt málum sínum sjálfir á þeim.
Síðustu mánuði hefur verið unnið að viðbótum við kerfið í samráði við ofangreind félög og tekið tillit til sérþarfa hvers og eins.
Tótal félagakerfi er að öllu leyti íslensk smíði og er forritað af Austurnet ehf. – sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem staðsett er á Egilsstöðum. Kerfið var skrifað fyrir AFL Starfsgreinafélag og voru tíðir rýnifundir starfsfólks AFLs grundvöllur þróunarvinnunnar. Þróun kerfisins og viðbætur hafa allar verið í nánu samráði við starfsfólk AFLs og nú síðustu mánuði starfsfólk Hlífar og loks hinna þriggja félaganna.