Samninganefnd Alþýðusambands Íslands hefur verið boðuð á fund í dag vegna úrskurðar Kjararáðs í gær sem hækkaði laun alþingismanna, ráðherra og forseta um tugi prósenta. Hjördís Þóra, formaður AFLs, segir að símarnir hafi varla stoppað í morgun - þar sem óánægðir félagsmenn hafi hringt inn og krafist aðgerða. Hjördís segir að það sé verulega þungt í fólki og því finnist þessi hækkun ömurleg skilaboð á sama tíma og verið sé að boða efnhagslegan stöðugleika og höfða ábyrgðar launafólks.
Hjördís vildi minna á að í febrúar verður tekin afstaða til forsenduákvæða gildandi kjarasamninga og munu ákvarðanir kjararáðs nú og í haust væntanlega hafa veruleg áhrif á viðhorf samninganefndar verkalýðshreyfingarinnar. Meðal þess sem einstaka félagsmenn hafa nefnt - er að launafólk allt leggi niður vinnu á tilteknum tíma og gangi út af vinnustöðum - en Hjördís segir að m.a. vegna ákvæða í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og vegna gildandi kjarasamninga geti félagið í sjálfu sér ekki hvatt til þess - enda myndi flokkast sem ólögmæt vinnustöðvun - en bætti við að þetta væri athyglisverð hugmynd.
Búast má við að konur í starfsliði AFLs gangi út í dag í tilefni baráttudags kvenna. Einn þriggja karlmanna í starfsliðinu er erlendis og einn í sumarfríi þannig að væntanlega verður þunnskipaður bekkur á skrifstofum félagsins í dag. Við vonum að félagsmenn sýni því skilning og þolinmæði.
Starfsdagur grunnskólastarfsmanna stendur nú yfir á Reyðarfirði, en það sækja félagsmenn sem starfa í grunnskólum á félagssvæðinu Að þessu sinni beinum við sjónum okkar inn á við, skoðum málefni okkar sjálfra og styrkingu okkar, bæði sem starfsmanns og ekki síður sem sterkari einstaklings. Þetta er í tíunda sinn sem starfsdagurinn er haldinn og að þessu sinni eru þátttakendur 47
42. þing Alþýðusambands Íslands var sett nú kl. 10 í morgun. AFL Starfsgreinafélag á 14 fulltrúa á þinginu - einn frá Iðnaðarmannadeild og einn frá Verslunarmannadeild og tvo frá Sjómannadeild og 10 frá Verkamannadeild. Meginþema þingsins er SALEK - hið "samnorræna samningamódel".
Einn þingfulltrúi AFLs, Pálína Margeirsdóttir, var kjörin ein af þingriturum og AFL hefur einnig lagt málefnanefndum þingsins til ritnefndarfulltrúa.
Talið hefur verið út atkvæðagreiðslu sem staðið hefur yfir meðal sjómanna í Sjómannadeild AFLs Starfsgreinafélags um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðsla fór fram meðal allra aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands og hjá félagi vélstjórnarmanna um verkfall þann 10. nóvember n.k. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var góð og niðurstaðan afgerandi en hún er eftirfarandi: Ekki liggja fyrir úrslit atkvæðagreiðslna annarra félaga þegar þetta er ritað.
Á kjörskrá 154 Atkvæði greiddu 108 70,13% Já sögðu 91 84,26% Nei sögðu 16 14,81% Ógildir 1 0,93% Verkfallið er ótímabundin og hefst þann 10. nóvember n.k. hafi ekki samist fyrir þann tíma