Félagsmenn samþykkja samninga.
Félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags hafa samþykkt samning AFLs / SGS við Samtök Atvinnulífsins svo og samning AFLs / Landssambands Íslenskra Verslunarmanna við Samtök Atvinnulífsins.
Á kjörskrá um samning AFLs /SGS voru 1348, atkvæði greiddu 343 eða 25,45%. Já sögðu 254 eða 74,05%. Nei sögðu 81 eða 23,62% en 2,3% voru auð og ógild atkvæði. Á kjörskrá um samning verslunarmanna voru 219. Atkvæði greiddu 35 eða 15,98%. Já sögðu 29 eða 82,9%. Nei sögðu 5 eða 14,3%, eitt atvkæði var autt.
Báðir samningarnir hafa því tekið gildi.